Vatnajökulsþjóðgarður.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir að vekja máls á þessu mikilvæga málefni. Mig langar að byrja á því að vísa aðeins í áður tilvitnaða ræðu hv. þingmanns þegar hann var formaður umhverfisnefndar og mælti fyrir nefndaráliti vegna þessa máls. Ef maður les í gegnum nefndarálitið sér maður að grunnurinn að þessu öllu var mikil samvinna við heimamenn og alla þá sem að málinu komu. Þess vegna var í upphafi rík sátt um það hvernig þetta stóra verkefni færi í gegn og sameiginleg sýn að mestu á það hvert ætti að stefna. Ég kannast þó við alveg frá upphafi athugasemdir frá heimamönnum við að yfirstjórnin væri ekki heima í héraði. Það er rétt að þær athugasemdir hafa heyrst alveg frá því að til þjóðgarðsins var stofnað.
Ég vil byrja á því að tala aðeins um tilganginn og markmiðin með stofnun þjóðgarðsins sem koma fram í 2. gr. laga um Vatnajökulsþjóðgarð. Tilgangurinn er sá að gefa almenningi kost á og kynnast og njóta náttúru svæðisins og sögu. Auðvelda skal almenningi aðgengi að þjóðgarðinum eftir því sem unnt er án þess að náttúran spillist og veita fræðslu um náttúru, sögu og mannlíf svæðisins.
Þegar þær raddir heyrast sem aðrir hv. þingmenn hafa vitnað til í umræðunni frá útivistarfólki sem ferðast um á ýmsan máta, að verið sé að loka á einhvern hátt fyrir aðgengi að þjóðgarðinum, hljótum við að þurfa að stíga til baka og hugsa á hvaða leið við erum. Ég vil hvetja hæstv. ráðherra til að hlusta á þessar raddir og beita sér í málinu, vegna þess að ef andinn er orðinn þessi gagnvart þjóðgarðinum erum við ekki á réttri leið. Við hljótum að ætla að hverfa aftur til baka til þess tíma þegar verið var að stofna til þjóðgarðsins og líta á ný til þeirra sjónarmiða að hafa samvinnu. Ég tel að það sé farsælast fyrir okkur öll.
Ég vek sérstaka athygli á þeim áhyggjuröddum sem hafa heyrst frá hreyfihömluðu fólki um að nú sé (Forseti hringir.) svo komið að verið sé að takmarka aðgengi þeirra að hálendinu. Það er ekki það sem við ætluðum okkur í upphafi.