Vatnajökulsþjóðgarður.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir umræðuna en um leið lýsa yfir ákveðnum vonbrigðum yfir því að menn skuli hér enn líta á það sem meginmarkmið sitt að tala þjóðgarðinn niður. Mér finnst ekki gott til þess að vita, sérstaklega vegna þess hversu ákveðnir menn voru í því þegar þjóðgarðurinn varð til að hann yrði áfram samstöðuverkefni. Það lýsir kannski því skotgrafaandrúmslofti sem einkennt hefur þingstörfin undanfarnar vikur og mánuði að menn geta ekki einu sinni talað um Vatnajökulsþjóðgarð öðruvísi en að ræða hann með hefðbundnum lágkúrulegum pólitískum brigslum. Það er önnur saga.
Stóra verkefnið þegar þjóðgarðar eru annars vegar felst í tvennu: náttúruvernd, þ.e. að gæta þess að ekki sé gengið á hagsmuni náttúrunnar og að tryggja aðgang, aðgengi og upplýsingar fyrir almenning. Þessir hagsmunir fara nánast alltaf saman. Þó kemur fyrir að stýra þarf umferð um náttúruverndarsvæði til þess að náttúran glati ekki verndargildi sínu. Þetta er grundvallaratriði þegar þjóðgarðar eru settir á fót.
Hins vegar vegna þess hversu miklar athugasemdir bárust um umferðarmálin — og mér finnst synd að þurfa að tyggja þetta hér á þessum stutta tíma — óskaði ég eftir því að settur yrði samráðshópur um þau mál. Hann er enn að störfum. Ég veit að hv. fyrirspyrjanda og nokkrum hér í salnum þykir verra að ég skuli hafa stuðlað að samráði en það gerði ég vegna þess að mér þykir vænt samstöðuna um Vatnajökulsþjóðgarð. Mér þykir vænt um þjóðgarðinn. Ég mælist til þess að við sem hér störfum mælum með honum en tölum hann ekki niður á Alþingi.
Mér finnst það okkur til skammar (Forseti hringir.) ef við þurfum að draga Vatnajökulsþjóðgarð inn í þá lágkúru sem hér hefur verið viðhöfð.