140. löggjafarþing — 121. fundur,  14. júní 2012.

orð ráðherra í sérstakri umræðu.

[14:39]
Horfa

Álfheiður Ingadóttir (Vg):

Frú forseti. Ég hef ekki miklar athugasemdir við fundarstjórn forseta. Ég hafði uppi nokkrar athugasemdir við orðræðu hv. þingmanna sem mér þótti heldur furðulegt tal, síbylja um óánægju og brostnar vonir, og að þjóðgarðurinn væri lokaður. Ég leyfði mér að segja að ég væri stolt af Vatnajökulsþjóðgarði, það ættum við að vera. (Gripið fram í.) Eðlilega gerði hæstv. forseti engar athugasemdir við það. Ég er ánægð með fundarstjórn forseta.