140. löggjafarþing — 121. fundur,  14. júní 2012.

húsnæðismál.

734. mál
[15:02]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að benda enn og aftur á þá skekkju sem er á markaðnum í þeim aðgerðum sem hefur verið gripið til. Íbúðalánasjóður er hlutfallslega miklu stærri lánveitandi á landsbyggðinni en bankarnir voru. Þar af leiðandi má færa fyrir því rök að þær aðgerðir sem fjármálastofnanir hafa farið í á hinum frjálsa markaði hafi ekki dugað sem skyldi eða ekki komið jafnmikið við þá sem eiga eignir úti á landi og skulda þar af leiðandi Íbúðalánasjóði. Íbúðalánasjóður þarf því klárlega að fá tæki og tól til að geta brugðist við þessu.

Það er ótækt að þurfa enn og aftur að rifja upp þann aðstöðumun sem er á milli landsbyggðar og höfuðborgar og sem kemur ágætlega fram í þessu. Það er staðreynd að þegar bankarnir voru upp á sitt besta gekk illa að fá lán fyrir framkvæmdum úti á landi fyrir nema kannski 50% þeirra eða svo. Þá var það Íbúðalánasjóður sem kom til skjalanna og lánaði meira og gat gert fólki kleift að byggja sér þak yfir höfuðið.

Það er nú svo merkilegt að fram að þessu hefur það verið landsbyggðin í flestum tilfellum, ekki öllum, sem hefur staðið sig einna best í að standa skil á þeim lánum sem menn hafa fengið, hvort sem það eru fyrirtæki eða einstaklingar. Þar af leiðandi er alveg hægt að gera þá kröfu að ríkisstjórnin fái sjóðnum tæki og tól til þess að laga þetta misræmi.