140. löggjafarþing — 121. fundur, 14. júní 2012.
heimild til að fjármagna gerð jarðganga undir Vaðlaheiði.
718. mál
Forseti. Fjárlaganefnd hefur tekið að nýju til umfjöllunar frumvarp til laga um heimild til handa fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs til að fjármagna gerð jarðganga undir Vaðlaheiði eftir 2. umr. hér á þingi. Það er mat meiri hluta fjárlaganefndar að eftir þá umræðu hafi ekkert slíkt komið fram sem kalli á breytingar á frumvarpinu. Það er tillaga meiri hluta fjárlaganefndar að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.