140. löggjafarþing — 121. fundur,  14. júní 2012.

heimild til að fjármagna gerð jarðganga undir Vaðlaheiði.

718. mál
[17:19]
Horfa

Mörður Árnason (Sf) (andsvar):

Forseti. Svarið er nú klént því ég hreinlega veit það ekki. Það hefur ekki fylgt sögunni hvort snjómokstri verði hætt eða ekki. Mér hefur þó sýnst að umbúnaðurinn um málið sé þannig að halda eigi að öllu jöfnu veginum opnum um Víkurskarð. Ég lagði fyrirspurn fyrir hæstv. innanríkisráðherra um þetta í fyrra og spurði hvort þessum vegi yrði ekki örugglega alltaf haldið opnum. Innanríkisráðherra taldi að það yrði kannski ekki. Nú ætla ég ekki að draga úr því að Víkurskarð sé erfið leið að vetri til, en það er ekki mjög langur tími sem skarðið er beinlínis lokað á hverjum vetri að meðaltali. Það sem Pálmi Kristinsson sagði hins vegar í skýrslu sinni, og ég þakka hv. þingmanni fyrir að hafa minnt á það, var að því aðeins gætu þessi göng gengið upp, ekki bara ef hætt yrði snjómokstri um Víkurskarð heldur ef beinlínis yrði komið í veg fyrir að menn færu veginn um Víkurskarð að vetri til. Það er auðvitað eitt af því í þessu máli sem maður hefur horft á með spurningarmerki og upphrópunarmerki í augunum.

Mín afstaða til þessa máls hefur hins vegar ekki aðallega mótast af einstökum efnisþáttum af þessu tagi, hvort „cash sweep-ið“ gengur, hvað árin verða mörg o.s.frv., heldur skal ég viðurkenna að ég hef horft á þetta sem samgöngunefndarmaður. Það sem hefur vakið mesta spurn hjá mér við þetta mál er hvort þetta sé ríkisframkvæmd eða einkaframkvæmd. Hver er þá til frambúðar, til framtíðar, skilgreining framkvæmdarinnar? Við því þarf að fást svar svo menn standi ekki uppi með það næst þegar eitthvað gerist að skilgreina verði hvert mál fyrir sig. Úr því vorum við að losna fyrir rúmum áratug eða fleiri árum með því að móta þá áætlun sem nú heitir samgönguáætlun. Þá vorum við að reyna að koma þessum mikla vanda fulltrúa (Forseti hringir.) kjördæma og héraða skipulega fyrir. Nú erum við aftur komin með það í uppnám.