140. löggjafarþing — 121. fundur, 14. júní 2012.
heimild til að fjármagna gerð jarðganga undir Vaðlaheiði.
718. mál
Forseti. Ég þakka hvatninguna og heiti því að standa mig vel í þessu máli. Um þessar spurningar er hins vegar ekki mikið meira að segja fyrr en við fáum að heyra hvaða álit framsögumaður málsins, hv. þm. Björn Valur Gíslason, hefur á þeim því þetta hlýtur að hafa verið rætt á hinum ítarlega, málefnalega og feikilega langa fundi fjárlaganefndar sem haldinn var í gærkvöldi frá klukkan 19 til 19.13, ef mínar upplýsingar eru réttar.