140. löggjafarþing — 122. fundur,  15. júní 2012.

húsnæðismál.

734. mál
[14:14]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka þingmanninum fyrir að vekja athygli á þessu. Það er mjög mikilvægt að við höfum alveg á hreinu hvar við stöndum í þessu máli því að þetta er gríðarlega mikið mál og afar mikilvægt að umræðan sé hreinskiptin þegar við ræðum þetta því að hér er um mjög mikla stefnumörkun eða mikilvægan þátt í öllu okkar efnahagslífi að ræða. Því þurfum við að hafa það alveg á hreinu hvar menn standa í þessum málum. Ég ætla mér bara að tala skýrt í þessu.