140. löggjafarþing — 123. fundur,  16. júní 2012.

tilkynning um skriflegt svar.

[10:00]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Borist hefur bréf frá velferðarráðuneytinu um frestun á því að skriflegt svar berist við fyrirspurn á þskj. 1278, um íbúðir í eigu Íbúðalánasjóðs, frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni. Ráðuneytið tilkynnir að ekki hafi tekist að afla nauðsynlegra gagna til að veita fullnægjandi svar við fyrirspurninni. Því er þess farið á leit við forseta Alþingis að velferðarráðherra verði veittur frestur til 21. júní nk. til að svara fyrirspurninni.