menningarminjar.
Hæstv. forseti. Það er eitt atriði sem ekki var nefnt og ég saknaði. Í nefndarálitinu er rökstudd sú breyting við 3. gr., a-lið, að í staðinn fyrir að í lögunum standi „frá árinu 1900 eða eldri“ komi „100 ára og eldri“. Mig vantar aðeins upp á framhald málsins og samhengi hlutanna til að átta mig á því með hvaða rökum nefndin ákveður þessa breytingu. Ég átta mig á því að umræðan um þetta fór fram við 2. umr. málsins og nefndin hefur greinilega sannfærst á grundvelli þeirra raka og umsagna sem fram komu þá en þar sem skýring kemur ekki fram í nefndarálitinu þætti mér áhugavert að heyra frá framsögumanni hvers vegna nefndin kemst að þessari niðurstöðu.