140. löggjafarþing — 123. fundur,  16. júní 2012.

menningarminjar.

316. mál
[11:01]
Horfa

Mörður Árnason (Sf) (andsvar):

Forseti. Nei, ekki alveg rétt, ekki eins og ég skil þennan texta sem ég er skrifaður fyrir. Minjastofnun setur í fyrsta lagi reglur um lágmarkskröfur til skráningar á hvoru skipulagsstigi um sig. Þær reglur eru ekki út í bláinn og Minjastofnun þarf auðvitað að leita samráðs um þær reglur. Síðan þegar þær reglur eru komnar er Minjastofnun heimilt að gera samkomulag við skipulagsyfirvöld, við sveitarfélögin, um það hvernig þessi skráning fer fram og þá fyrst og fremst skráningin fyrir aðalskipulagið. Þá kemur að því að líta á áætlun sveitarfélagsins eða búa til áætlun með sveitarfélaginu um það hvað á að taka fyrir, í hvaða röð, eftir hvaða svæðum og á hve löngum tíma. Ég get ímyndað mér að það verði mjög misjafnt eftir hverju sveitarfélagi. Sum sveitarfélög þurfa ekki á neinu svona samkomulagi að halda, annaðhvort klára sitt eða hafa lokið við það og önnur þurfa meiri umþóttun.

Hér er ekki talað um það frekar en annars staðar að Minjastofnun geti sett einhverja peninga sjálf í þetta. Það yrði að leggja fram annars staðar en ég ímynda mér (Forseti hringir.) eins og ég sagði áðan að finna mætti til þess leiðir í þeim tilvikum þar sem ekki er hægt að koma því fyrir öðruvísi.