140. löggjafarþing — 123. fundur,  16. júní 2012.

menningarminjar.

316. mál
[11:02]
Horfa

Unnur Brá Konráðsdóttir (S):

Hæstv. forseti. Mig langar að þakka hv. þm. Ragnheiði Ríkharðsdóttur fyrir framsögu í þessu máli. Þetta frumvarp var að einhverju leyti rætt í gömlu menntamálanefndinni þar sem ég átti sæti þannig að ég hef að hluta til forsögu í málinu, ég hef að einhverju leyti komið að því. Það er ágætt að það er komið fram til 3. umr. þannig að við getum rætt það.

Í andsvörum okkar nokkurra þingmanna við hv. þm. Mörð Árnason, þar sem hann færði rök fyrir breytingartillögu sinni, birtist okkur eiginlega vandinn varðandi þau atriði sem helst eru til vansa í þessu kerfi, það er að sjálfsögðu fjármagn. Við erum auðvitað með okkar menjar og menningarminjar og þær eru mikilvægar og mikilvægt að halda þeim til haga, við höfum að mínu mati ekki sinnt því sem skyldi á undanförnum árum. Ef ég tala sérstaklega um mitt svæði, þ.e. Suðurland, þá vorum við ekki með minjavörð á helsta uppgangstímabili í byggingarframkvæmdum á okkar svæði. Maður hefur áhyggjur af því að við höfum ekki verið að standa okkur varðandi skráningu og umgengni við þessar minjar. Úr því hefur nú verið bætt og við erum með minjavörð og það er ágætt. Það voru allir að reyna að gera sitt besta en við höfðum kannski ekki nægilegan aðgang að sérfræðingum til að fara yfir þessi mál. Þess vegna hef ég áhyggjur af því að við höfum ekki staðið okkur sem skyldi.

Við sjáum það kannski í þeim fjölda sem skráður var í Grímsnesi og Grafningshreppi, við þekkjum það hversu margir sumarbústaðir og heilsárshús eru þar, þar eru sem dæmi sjö friðlýstar minjar. Það er mjög langt síðan þær komust inn á friðlýsingarskrá. En allt stendur þetta til bóta og það frumvarp sem við ræðum hér er hluti af því að laga þetta allt saman.

Það er eitt atriði sem mig langar að gagnrýna í upphafi máls míns. Það er að hér liggur ekki fyrir umsögn eða niðurstaða varðandi kostnaðarmat gagnvart sveitarfélögum. Það kemur meðal annars fram í ábendingum í umsögn frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga að ekki hafi fylgt með umsögn um þetta atriði, þ.e. kostnaðarmat gagnvart sveitarfélögunum varðandi frumvarpið. Ég skil einfaldlega ekki, frú forseti, hvers vegna það er ekki. Það var búið að ná, að því er ég taldi, samkomulagi um að slíkt kostnaðarmat ætti að fara fram. Í þessum málaflokki er ljóst, þar sem sveitarfélögin fara með skipulagsvaldið — og ég tala ekki um ef breytingartillaga hv. þm. Marðar Árnasonar verður að veruleika — þá erum við að tala um hluti sem geta haft veruleg áhrif á það fjármagn sem sveitarfélögin þurfa að leggja til þessa málaflokks. Auðvitað kostar þetta allt peninga en það er alla vega ljóst að við sem störfum hér á þinginu eigum að hafa þessar upplýsingar í höndunum þegar við tökum ákvarðanir.

Það var lögfest 1. janúar 2012, með sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011, að það sé skylda að leggja fram slíkt kostnaðarmat gagnvart sveitarfélögunum. Það er mjög þungur tónn í athugasemdum Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi það atriði og þeir hvetja hv. þingmenn til að taka frumvarpið ekki til umræðu á Alþingi ef misbrestur er á gagnvart þessu ákvæði. Við erum að sjálfsögðu að klára þetta mál en ég tel samt, í ljósi þess að við ætluðum að vera með bætt vinnubrögð, að við þurfum að horfa aðeins í þetta þegar við erum að vinna málin almennt.

Frú forseti. Þá langar mig aðeins að tala um hvað þetta þýðir allt saman. Við höfum í gegnum tíðina verið að friðlýsa ýmsar minjar, hvort sem það eru hús eða menningarminjar af öðru tagi og friðlýsingarskrá um hina og þessa hluti sem eru friðlýstir liggur fyrir. Ég var sveitarstjórnarmaður áður en ég settist á þing og höndlaði meðal annars með svæði þar sem friðlýsingar voru til staðar. Maður áttaði sig ekki alveg á tilganginum með friðlýsingunni, þ.e. hvernig átti að fara með slíkar minjar og hver ætti að bera ábyrgð á því að vernda þær og hugsanlega verja ef á þyrfti að halda.

Í frumvarpinu er ákvæði sem fjallar um þessar friðlýsingar þar sem meðal annars er skilgreining á friðlýsingu, í 18. gr. Þar er vísað til þess að þá megi friðlýsa fornminjar. Þessu hefur verið breytt eftir 2. umr. Bætt hefur verið inn:

„Friðlýsa má fornleifar, skip og báta, svo og hús og mannvirki eða hluta þeirra sem hafa menningarsögulegt, vísindalegt eða listrænt gildi.“

Þetta er svo sem ágætt og hér segir til hvaða svæðis friðlýsingin eigi að ná, hún geti náð yfir samfellt svæði utan um þessa merku hluti. En hvað þýðir þetta?

Í lögunum er síðan fjallað um framkvæmd friðlýsingar. Það er Minjastofnun Íslands sem skal tilkynna landeiganda, húseiganda og lögreglustjóra í bæjar- og sveitarstjórn ákvörðun um friðlýsingu og gera drög að friðlýsingarskilmálum og leggja fyrir landeigendur. En hvað mun standa í þeim friðlýsingarskilmálum? Hvernig ætlum við að hafa þessa hluti? Ég hefði talið rétt að það væri útfært nánar í lögunum sjálfum hvaða skilmála væri heimilt að leggja fram. Auðvitað verður síðan samkvæmt lögunum kvöð þinglýst inn á friðlýstar eignir og sýslumaður mun svo láta vita ef eitthvað er verið að höndla og versla með þessar friðlýstu eignir eða hluti. En hvað mun friðlýsingin nákvæmlega þýða? Hvaða réttaráhrif hefur það í för með sér að vera til dæmis bóndi sem á jörð með friðlýstri eign eða friðlýstu gömlu mannvirki? Þetta er atriði sem ég rak mig á þegar ég starfaði á vettvangi og ég sé ekki að það sé mikil breyting varðandi þessar skilgreiningar.

Bent er á þetta í nokkrum umsögnum og í 5. gr. er farið í þetta. En það er í raun látið algerlega í vald stofnuninni að gera þessa skilmála og þeir mega þá í raun vera um hvað sem er eins og manni sýnist hér. En þetta er svo sem eitthvað sem taka mætti til umræðu í framtíðinni þegar reynsla verður komin á starfsemi stofnunarinnar. En hvað á að verða um alla þá hluti og minjar sem þegar eru friðlýstar? Þegar maður horfir yfir þá skrá eða rekst á þær minjar sem eru friðlýstar á manns eigin svæði þá áttar maður sig ekki alltaf á því hvernig þær hafa komið til.

Í einu tilviki úr störfum mínum sem sveitarstjóri man ég að það var einfaldlega einn maður sem skrifaði bréf og sagði að þarna væru merkilegar minjar og þær virtust hafa verið friðlýstar án þess að nokkur sérstök athugun hefði farið fram á því eða umræða frá öðrum aðilum sem tengdust svæðinu þar sem þetta var. Síðan kom að því að fara átti í framkvæmdir þarna og þá voru allir týndir varðandi rökstuðninginn á bak við friðlýsinguna, það var ekki alveg ljóst hvers vegna hún hefði komið til. Það væri kannski ágætt að það lægi fyrir, af því að ég hef ekki séð það í nefndaráliti, hvað verður um allar fyrri friðlýsingar. Halda þær allar gildi sínu? Er meiningin að stofnunin fari á einhverjum tímapunkti yfir friðlýsingarskrána og skoði hvort rétt sé að aflétta friðlýsingum? Eða verður það bara hlutverk hvers og eins sem rekst á þetta á sinni heimaslóð að óska eftir afnámi á grundvelli 25. gr. laganna? Eða varðar það afnám aðeins friðun sem er annað hugtak en friðlýsing eða nær það yfir þetta líka? Þetta er spurning sem vaknaði hjá mér við yfirferð þessa máls og hefur svo sem komið upp áður þegar maður var að vinna í skipulagsmálum heima í héraði.

Mig langar síðan í örstuttu máli að víkja aðeins að hlutverki minjavarða. Mér finnst hlutverk þeirra gríðarlega mikilvægt. Ég vona svo sannarlega að við náum að halda þeim litlu fjárveitingum sem eru inni í kerfinu og í fjárlögum til þessara mikilvægu starfa. Ég þekki það sjálf að eftir að minjavörður kom til starfa á Suðurlandi þá hefur afstaðan til þessara hluta breyst heima í héraði. En á hverju ári þegar við förum í fjárlagavinnuna vakna áhyggjur af því að þetta starf verði að nýju tekið af og minjavörður Suðurlands verði ekki lengur starfandi. Það hefur sem betur fer ekki enn orðið að veruleika. Við rákum okkur á að við vorum aftarlega á merinni varðandi þessi mál af því að við höfðum engan minjavörð. Sveitarstjórnarmenn og þeir sem höfðu áhuga á þessum málum og töldu mikilvægar minjar vera til staðar á jarðareign sinni höfðu kannski ekki beint aðgengi að neinum sem gat komið og aðstoðað við að meta hvort þörf væri á að rannsóknir og skráning færi fram.

Sum sveitarfélög hafa gengið mjög langt og farið fram úr því sem lagakrafa er gerð um. Til dæmis hefur verið minnst á Fljótsdalshérað. Þegar maður ræðir við sveitarstjórnarmenn þaðan er gott að vita til þess að hægt er að gera þessa hluti þannig úr garði að við séum alveg tryggð með það að við séum ekki að fórna mikilvægum menningarverðmætum án þess að nokkur taki eftir því. En ég hef ákveðnar áhyggjur af öðrum svæðum. Ég hef áhyggjur af litlum sveitarfélögum sem eru full af vilja til að ganga vel um og gera hlutina vel en hafa ekki til þess fjárhagslegt bolmagn við skipulagsgerð. Við getum tekið dæmi af sveitarfélaginu Skaftárhreppi sem er mjög fámennt sveitarfélag en gríðarlega landmikið, eitt landmesta sveitarfélag landsins. Þar er til dæmis mikið verk óunnið og heimamenn fullir af vilja til að gera hlutina vel en hafa ekki til þess fjárhagslegt bolmagn, því miður.

Eins og ég lýsti yfir áðan, í andsvari við hv. þm. Mörð Árnason, þá finnst mér breytingartillaga hans efnislega góð og ég skil viljann sem er þar að baki til að gera hlutina betur en við gerum í dag. En ég get ekki stutt þá tillögu vegna þess að henni fylgir ekki fjárhagsleg greining á þeim áhrifum sem þetta hefur á sveitarfélögin og eins þá hvernig fjármagna eigi þá ítarlegu skráningu sem gert er ráð fyrir að fari fram þegar á aðalskipulagsstigi.

Frú forseti. Að öðru leyti fagna ég því að þetta mál er komið fram. Það var áður lagt fram á 139. löggjafarþingi og hefur tekið nokkrum breytingum. Það er margt í því sem maður kannast við frá því að fjallað var um það á fyrra þingi og það er allt gott og blessað með það. Ég styð í sjálfu sér að þetta verði að veruleika en lýsi þó yfir áhyggjum af fjármagninu. Ég veit að mikið verk er óunnið og ég vonast til þess að í framtíðinni berum við gæfu til að vinna þessa hluti vel.

Hér er fjallað um flutning íslenskra fornleifa úr landi og hvernig íslenskar fornminjar sem fluttar hafa verið ranglega úr landi verði fluttar aftur heim. Mig langar að varpa fram þeirri spurningu hvort komið hafi til tals í nefndinni að ná heim menningarminjum okkar og fornminjum sem hafa verið vistaðar og hefur verið bjargað af frændþjóðum okkar. Ég nefni sem dæmi miklar minjar sem eru geymdar og varðveittar í Noregi.