140. löggjafarþing — 123. fundur,  16. júní 2012.

menningarminjar.

316. mál
[11:24]
Horfa

Álfheiður Ingadóttir (Vg):

Herra forseti. Ég leyfi mér að kveðja mér hljóðs út af þessu máli. Ég hlýddi grannt á framsöguræðu hv. þm. Ragnheiðar Ríkharðsdóttur fyrir tveimur breytingartillögum sem nefndin leggur til við 3. umr. og ég verð að segja að það er langt í frá að ég sé sannfærð. Það sem hér um ræðir er frumvarp um að setja á stofn nýja stjórnsýslustofnun sem á að taka við öllum verkefnum, réttindum, eignum og skuldbindingum Fornleifastofnunar og húsafriðunarnefndar frá 1. janúar á næsta ári. Það er verið að setja heildstæðan lagaramma utan um rannsóknir á þessum sviðum og verkefni stofnunarinnar.

Fornleifaskráning og fornleifarannsóknir hafa verið með ýmsum hætti hér á landi og því miður hefur yfirsýn yfir þær skort annars vegar og hins vegar hefur skort verulega á að þeir sem stunda slíkar rannsóknir skili niðurstöðum þeirra. Ekki síst hefur skort á að þeir skili þeim munum sem finnast við rannsóknir.

Það er margt annað sem mætti ræða í þessu en ég ætla bara að tala um þetta tvennt vegna þess að nú við 3. umr. leggur nefndin til í heilu lagi, að því er mér sýnist, að 36. gr. falli brott. Í þeirri grein segir um fornleifarannsóknir að tilkynna skuli Minjastofnun Íslands um allar fornleifarannsóknir í landinu. Það er þetta sem á að fella niður. Ef þessi nýja stofnun á að standa undir nafni og þeim væntingum sem til hennar eru gerðar verður hún að hafa yfirsýn yfir allar fornleifarannsóknir sem verið er að vinna að hverju sinni. Annars getur hún ekki sinnt eftirlitshlutverki sínu. Ég á ekki sæti í nefndinni en eftir því sem ég best sé af gögnum málsins á þetta ákvæði við hvort sem leyfi þarf til rannsóknanna eða ekki.

Hv. allsherjar- og menntamálanefnd skilaði nefndaráliti fyrir 2. umr. og þar er hvergi minnst á þetta atriði. Það er ekki einu sinni nefnt í lýsingu á þeim köflum sem frumvarpið skiptist í. Þar segir um VII. kaflann að hann fjalli um verndun og varðveislu húsa og mannvirkja og að þar sé meðal annars að finna það nýmæli að skilgreint sé hvað felist í friðun mannvirkja. Á þetta nýmæli var hins vegar ekki minnst í nefndarálitinu við 2. umr. Síðan er allt í einu lagt til núna að þetta falli brott. Eins og ég segi tel ég ekki hafa komið fram nægilegar röksemdir í ræðu hv. þingmanns, a.m.k. ekki fyrir þá sem hér stendur, til að fallast á þetta enda þótt öll nefndin virðist styðja það. Ég sé ekki hvernig eða hvar á að vera hægt að finna yfirlit yfir fornleifarannsóknir eða fornleifafundi ef þessi tilkynningarskylda er ekki fyrir hendi. Það verður algerlega tilviljanakennt hvernig þessu verður háttað ef ekki er um lagaskyldu að ræða þannig að án þess að fá frekari röksemdir fyrir þessu get ég ekki stutt þessa tillögu nefndarinnar. Ég tel að með henni sé grafið undan starfsemi stofnunarinnar og að hún muni ekki geta sinnt því hlutverki sem við ætlum henni, að hafa yfirsýn, og að hún muni þess vegna ekki geta sinnt eftirlitshlutverki sínu.

Önnur breytingartillaga sem nefndin ber fram varðar 40. gr., um skil á gripum sem finnast við fornleifarannsóknir sem samkvæmt frumvarpinu var ætlað að skila innan tiltekins tíma. Nefndin leggur nú til að þar á verði engin sérstök tímamörk heldur eigi Minjastofnun Íslands að kveða á um þegar gefið er út rannsóknarleyfi hvenær eigi að skila mununum.

Eins og ég nefndi áðan hefur þetta atriði verið eitt það gagnrýniverðasta við framkvæmd fornleifarannsókna á Íslandi, að þeir sem þær hafa stundað hafa hvorki skilað rannsóknaniðurstöðum né gripum og það jafnvel þótt stíft hafi verið eftir því gengið. Ég þekki sjálf nokkur dæmi um slíkt og ég efa ekki að öðrum þingmönnum sé kunnugt um þau líka.

Það kann vel að vera eðlilegt að hafa sveigjanleika í þessu en ég tel að þessi breyting, þ.e. að stofnuninni sé ætlað að ákveða þetta í hvert eitt sinn, muni valda því að það verði mikill þrýstingur á að veita sem allra lengstan frest til að skila gripum og að það geti á tímum verið erfitt fyrir stofnunina að standa gegn slíkum þrýstingi.

Herra forseti. Þetta frumvarp til laga er mikilvægur áfangi og lokaáfangi í gerð nýs lagaumhverfis um þjóðminjavörsluna okkar, safnalög, þjóðminjalög og menningarminjar. Það er mikilvægt að vel takist til en ég verð að segja að það veldur mér verulegum vonbrigðum hvernig nefndin hefur kollvarpað skráningarskyldunni á fornminjum nú fyrir 3. umr. Það vantar allan rökstuðning í nefndarálitið og það er erfitt að styðja slíka tillögu.