140. löggjafarþing — 123. fundur,  16. júní 2012.

fjármálafyrirtæki.

762. mál
[13:52]
Horfa

Frsm. minni hluta efh.- og viðskn. (Lilja Mósesdóttir) (U) (andsvar):

Frú forseti. Ég á sæti í hv. efnahags- og viðskiptanefnd og er eini nefndarmaðurinn sem er ekki með á nefndarálitinu. Mér finnst svolítið sérstakt að upplifa í þessu máli að það ríki mikil eining milli svokallaðra vinstri og hægri flokka um að heimila breytingar á rekstri sem var alltaf byggður á félagslegum grunni yfir í hagnaðardrifinn rekstur. (Gripið fram í.) Hér spyr hv. þingmaður (Gripið fram í.) hvort það sé ekki samstaða um það og þá vil ég bara koma að stefnu Samstöðu, flokks lýðræðis og velferðar, um að hér eigi að vera einn banki í ríkiseigu og sparisjóðakerfið lifandi þar við hliðina á. Ég gat því ekki verið með á þessu nefndaráliti.

Auk þess er það líka stefna Vinstri grænna, eða var það að minnsta kosti á meðan ég var í þeim flokki — (Gripið fram í.) Já, það er rétt, hv. þingmaður, það er margt sem hefur breyst hjá Vinstri grænum eftir að þeir settust í valdastólana. Ég tel að ég geti ekki verið með á nefndaráliti sem leggur til heimild um að sparisjóðum verði breytt í hlutafélög. En ég vil, frú forseti, spyrja hv. þm. Tryggva Þór Herbertsson hvort hann sé ekki sömu skoðunar og ég, að það sé mjög sérstakt að það skuli ríkja á þingi svona mikil eining um að breyta rekstri sem er á félagslegum grunni, hefur það að markmiði að nota hagnaðinn af starfseminni til þess að lækka útlánakostnað og styrkja samfélagsleg verkefni, yfir í hlutafélag þannig að hagnaðurinn renni til einstaklinga sem eiga hlut í félaginu.