innheimtulög.
Hæstv. forseti. Ég vil nota tækifærið eins og þeir hv. þingmenn sem hér hafa talað, Unnur Brá Konráðsdóttir og Tryggvi Þór Herbertsson, til að nefna að þetta er dæmigert allsherjarnefndarmál, þ.e. réttarfarsmál sem ætti auðvitað heima þar. Á undanförnum tveimur til þremur árum verið töluverð lausung á hvar mál af þessu tagi lenda og má rekja það alveg til fyrstu skrefa sem stigin voru eftir hrun til að lagfæra löggjöf. Þetta er því ekki einsdæmi og var meira að segja fyrir hendi fyrir þá breytingu á nefndaskipan sem átti sér stað í fyrra. Þetta er hins vegar mál sem þarf að skoða svolítið vel þannig að á einum stað í þinginu sé yfirsýn yfir réttarfarsatriði en ekki sé verið að fjalla um réttarfarslöggjöf í efnahags- og viðskiptanefnd, velferðarnefnd, allsherjarnefnd og ef til vill fleiri nefndum.