innheimtulög.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta og fagna því ef hv. þingmaður er sammála mér um að við þurfum að skoða hvort það þurfi að setja hér sérstaka löggjöf varðandi eignaleigu. Það er þá bara vonandi að við náum að koma því til dæmis í framkvæmd á haustþingi.
Að öðru leyti hlakka ég til að fá að heyra ræðu hv. þingmanns og annarra nefndarmanna sem eiga eftir að tala hér í dag. Þeir fara vonandi yfir þær spurningar sem ég varpaði fram af því að ég átta mig á því að tíminn var knappur og hv. þingmaður gat ekki farið yfir þetta allt saman. Ég tel einfaldlega mikilvægt að við skoðum þetta mál vel og fáum svör við þessum spurningum við umræðuna þannig að þetta mál fari ekki í gegn án þess að öll sjónarmið komist að, sérstaklega í ljósi þess að það hefði að mínu mati átt að vera til meðferðar í allsherjarnefnd og ég lít á það með því sjónarhorni sem frá þeirri nefnd stafar en ekki efnahags- og viðskiptanefnd.