140. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2012.

veiðigjöld.

658. mál
[17:35]
Horfa

Bjarni Benediktsson (S):

Frú forseti. 2. umr. um veiðigjöldin hefur verið löng og hefur varpað skýru ljósi á málið. Við höfum í vinnu nefndarinnar fengið fram mjög mikilvægar upplýsingar sem sýna hvers konar óðagot það var af ríkisstjórninni að æða fram með málið, hve vanhugsað málið var frá grunni, allar helstu forsendur gjaldsins sem átti að leggja á útgerðina voru byggðar á sandi og málið í heild sinni setti störf og framtíð sjávarútvegsins í landinu í mikið uppnám. Þetta sést þó ekki nema á því að í upphaflegu mynd sinni var frumvarpið þannig vaxið að það hefði lagt á sjávarútveginn 25 milljarða nýtt gjald.

Nú kynna stjórnarflokkarnir áform um að draga mjög úr því. Undir þessari umræðu hafa komið fram breytingartillögur þar sem áætlað var að lækka gjaldið niður í 15 milljarða. Nú er gengið enn lengra eftir umræður síðustu daga og vikna og dregið er úr skattlagningu en eftir stendur samt sem áður gjald sem verður aldrei túlkað annað en sem ofurskattur, 12–13 milljarða skattlagning á næsta fiskveiðiári, gjald sem ekki hefur verið sýnt fram á að útgerðin muni standa af sér. Við fáum dæmi til okkar hér í þinginu um félög sem munu lenda í rekstrarvanda, sérstaklega ef þessi gjaldtaka er komin til að vera.

Það sem er kannski verst af öllu er að ríkisstjórnin hefur gjörsamlega glutrað niður tækifærinu til þess að eiga í þinginu málefnalega og uppbyggilega umræðu sem byggði á samkomulagi þvert á alla flokka um að það væri sanngjarnt og eðlilegt að menn greiddu auðlindarentu, að menn greiddu gjald ef þeir hefðu forgang til nýtingar á þessari sameiginlegu auðlind og hagnaður myndaðist sem hægt væri að rekja sérstaklega til þess forgangs, hagnaður sem væri meira en gengur og gerist.

Í stað þess var vaðið fram með mál sem er þannig samansett að við sjáum ekki til botns í því hvaða ávöxtun er skilin eftir fyrir fjárfestingu í greininni. Við erum með mál þar sem útgerðaraðilar eru skattlagðir vegna framlegðar sem myndast í fiskvinnslu. Hvernig ætla menn að réttlæta það? Við erum með mál þar sem gengið er út frá einhvers konar meðalsjávarútvegsfyrirtæki, en staðreyndin er sú að við erum með alls konar fyrirtæki í mismunandi stöðu í rekstri um allt land. Sum eru lítil, önnur eru stór. Sum eru með mikla skuldsetningu, önnur eru með litla skuldsetningu. Sum hafa keypt aflaheimildir, önnur hafa tekið þær að láni.

Málið, eins og það liggur fyrir núna í þinginu, er þannig vaxið að á engan hátt er hægt að líkja umræddri skattlagningu við auðlindarentu í nokkurri mynd. Málið á í raun og veru ekkert skylt við auðlindarentu eins og við höfum almennt rætt um hana hér í þinginu. Þess vegna er málið, þrátt fyrir lækkanir, tilslakanir, breytingar og að tillit hafi verið tekið til einstakra atriða sem birtast í breytingartillögum, alger bastarður í raun og veru. Það er ekkert annað. Það er bastarður. Það er klúðursleg samsetning af ranghugmyndum um það hversu mjög er hægt að ganga á sjóði og afrakstur sjávarútvegsfyrirtækja í landinu í þágu skammtímahagsmuna ríkisstjórnarinnar. Þannig er þetta mál búið. Þess vegna höfum við barist gegn því. Þess vegna munum við áfram leggjast gegn því.

Við teljum að eitt mikilvægasta verkefni komandi mánaða sé að hugsa þetta mál frá grunni upp á nýtt. Það merkilega er að stjórnarflokkarnir hafa í raun og veru samþykkt að þörf sé á því. Vegna þess að eftir að gjaldinu er komið á þá á veiðigjaldsnefnd, sem nú verður komið á fót, að skoða hvort ekki hafi verið rétt reiknað, hvort einhverju hafi verið sleppt, hvort gjaldið bitni þannig á sumum að tekið sé meira en eðlilegt er og til stóð. Allt þetta á að gerast í framtíðinni. Þvílíkur áfellisdómur yfir vinnubrögðum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Þvílíkur áfellisdómur yfir verklagi einnar ríkisstjórnar að koma með mál hingað inn í þingið með væntingar um að hirða til sín 25 milljarða af einni atvinnugrein en þurfa síðan að slá af helminginn, taka helminginn út, en vera engu að síður með mál sem ekki er hægt að færa sannfærandi rök fyrir að sé sanngjarnt og eðlilegt að fáist hér afgreitt. Og þurfa samt sem áður að samþykkja að nýjar nefndir verði skipaðar til að fara yfir það hvort ekki sé rétt reiknað, hvort þurfi að gera þetta öðruvísi, hvort að slaka þurfi á. Nú síðast í dag þurftu forustumenn ríkisstjórnarinnar að skrifa undir yfirlýsingu þar sem þau sögðu: Ef í ljós kemur að einstaka útgerðir lenda í verulegum rekstrarerfiðleikum eða við erum að taka of mikið af framlegð einstakra fyrirtækja, munum við að sjálfsögðu slaka á enn frekar.

Þau vinnubrögð eru einfaldlega í takt við annað það sem hefur komið frá ríkisstjórninni á þessu kjörtímabili og varðar íslenskan sjávarútveg. Allt kjörtímabilið hefur einkennst af einhverjum ofstopa og ranghugmyndum þeirra sem stýra meiri hluta þingsins. Það byrjaði allt á hugmyndum um innköllun allra aflaheimilda og nýja úthlutun eftir hugmyndum sem hafa ekkert með hagkvæmni og arðsemi greinarinnar að gera. Svo endar það á tveimur frumvörpum sem við höfum rætt hér á vordögum þessa þings, þ.e. þessu máli, veiðigjaldamálinu, sem er bastarður, og verður sem betur fer strax tekið til endurskoðunar. Ég trúi því að það muni leiða til mikilla breytinga á gjaldinu strax í kjölfarið. Síðan hinu málinu, frumvarpi til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða. Það mál verður sem betur fer látið liggja, fæst ekki afgreitt.

Við höfum fengið breiðu línurnar um það sem stjórnin hyggst gera með það mál. En það sem mestu skiptir er að ekki verða gerðar breytingar á fiskveiðiárinu sem er fram undan, þannig að sjávarútvegurinn getur þó fengið þá lágmarksvissu sem því fylgir fram að næstu kosningum. Þá er kannski hægt að takast á um það hvers konar kerfi skynsamlegt er að byggja hér upp, hvers konar kerfi er líklegast til að skila mestum arði til þjóðarinnar allrar og hverjir það eru sem láta sér annt um að verja störf, framleiðni og arðsemi í þessari mikilvægustu atvinnugrein okkar Íslendinga.

Það er nefnilega þannig að margir hafa þóst vilja skila arðinum til þjóðarinnar af sjávarútveginum. Þeir kunna enga aðra leið en ráðast gegn sjálfu kerfinu sem skapar arðinn og kynna svo um leið til sögunnar ofurskattlagningu. Sú leið er leiðin til glötunar í þessum efnum. Hún er dæmd til að mistakast. Þess vegna höfum við á undanförnum dögum og vikum átt í orðræðu, jafnvel átökum, við stjórnarmeirihlutann sem fer fyrir þeim hugmyndum.

Frú forseti. Ég ætla að láta þetta verða mín lokaorð í umræðunni. Hún hefur verið löng en hún hefur verið gríðarlega mikilvæg. Það stefnir í að stjórnarmeirihlutinn muni styðja breytingartillögur sem er að vænta frá meiri hluta atvinnuveganefndar, en við vitum um leið að málið sjálft kallar á endurskoðun, þ.e. gengið er út frá því í málinu sjálfu að grundvöllur þess verði endurskoðaður með því að veiðigjaldsnefnd verði komið á og svo vitum við líka, við hin sem höfum staðið gegn málinu allan tímann, að efni málsins er einfaldlega þannig vaxið að taka verður það til skoðunar frá grunni sem allra fyrst þannig að stór skaði hljótist ekki af fyrir framtíð greinarinnar.