veiðigjöld.
Frú forseti. Hér kemur til atkvæðagreiðslu frumvarp sem galt afhroð í umsagnarferli þingsins, sem hefur tekið stökkbreytingu í nefnd þar sem gjaldið sem upphaflega stóð til að taka átti að vera á þriðja tug milljarða, í kringum 25 milljarða. Ríkisstjórnin hefur nú slegið af um 10–12 milljarða (Gripið fram í.) sem segir allt um það hversu hrikalega vanhugsað, vanbúið og illa ígrundað málið var þegar það kom hingað inn, enda ógnaði málið þá og gerir enn störfum úti um allt land. Þegar hæstv. forsætisráðherra segir að með þessu sé betur tryggt að arðurinn af auðlindinni skili sér til þjóðarinnar er hún því miður á villigötum vegna þess að með þessu máli fylgja ekki neinir sannfærandi útreikningar um að verið sé að taka auðlindarentu í raun. Það eina sem á endanum getur tryggt að þjóðin njóti sanngjarnrar hlutdeildar af arði þess (Forseti hringir.) að nýta auðlindina er að hafa hér hagkvæmt og vel rekið fiskveiðistjórnarkerfi. Það er það sem við ætlum að standa vörð um í framtíðinni.