nauðungarsala, aðför, meðferð einkamála og fjármálafyrirtæki.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir ræðu hans. Ég er honum hjartanlega sammála um að auka þarf fjárveitingar til gjafsóknar. Framlög til gjafsóknar hafa verið skorin illilega niður í kjölfar hrunsins, eins og aðrir þættir í rekstri ríkisins, og það er auðvitað mjög mikilvægt að gæta að því að ekki sé gengið það nærri þeim útgjaldalið að skaði verði að. Um það erum við hæstv. ráðherra hjartanlega sammála að þetta er stórkostlegt mannréttindamál að hafa tækifæri til að sækja um og fá gjafsókn fyrir þá einstaklinga sem brotið er á og þurfa að leita réttar síns fyrir dómstólum en hafa ekki fjárhagslegt bolmagn til þess. Það er ein meginreglan.
Hin meginreglan sem var frá upphafi í þessum lögum var sú að ef um væri að ræða mikilvæg mál sem varða almannahag og eru fordæmisgefandi að því leytinu til þá megi óska eftir gjafsókn og þá er ekki verið að horfa til þess endilega hvað menn hafa í tekjur eða útgjöld heldur til mikilvægis málanna. Þetta eru mál sem varða almannahag eins og ég segi og eru oftar en ekki þá mál sem snúa að málsókn gegn stjórnvaldinu sjálfu, jafnvel gegn innanríkisráðuneytinu sem síðan er óskað eftir gjafsókn hjá. Þetta er mjög mikilvægt atriði.
Það er hins vegar ekki rétt sem hæstv. ráðherra sagði að hér sé verið að kalla beinlínis eftir auknum fjárveitingum með frumvarpinu. Ég vek athygli á að ég held að þetta sé í þriðja eða fjórða sinn sem ég stend að flutningi þessa máls og hæstv. ráðherra (Forseti hringir.) hefur greitt því atkvæði í hvert sinn sem það hefur gengið til atkvæða þannig að þessi afstaða hans veldur mér verulegum vonbrigðum.