140. löggjafarþing — 125. fundur,  18. júní 2012.

nauðungarsala, aðför, meðferð einkamála og fjármálafyrirtæki.

716. mál
[21:53]
Horfa

Eygló Harðardóttir (F):

Virðulegi forseti. Þó þetta sé kannski ekki það mál sem hefur verið mest rætt á undanförnum vikum í þinginu, er það að mínu mati samt eitt af þeim stærri málum sem við erum að fara að afgreiða á Alþingi. Ég var flutningsmaður að málinu þegar efnahags- og viðskiptanefnd lagði það fram og kom að undirbúningi þess þar og ég er líka meðflutningsmaður að breytingartillögu sem hv. þm. Magnús M. Norðdahl er 1. flutningsmaður að, ásamt hv. þm. Margréti Tryggvadóttur. Hv. þm. Magnús M. Norðdahl hefur farið ágætlega í gegnum þá breytingartillögu og önnur efnisatriði frumvarpsins.

Það sem ég mundi einna helst vilja koma inn á eru hin svokölluðu gjafsóknarákvæði tvö, þ.e. 7. og 8. gr. frumvarpsins. Það liggur fyrir breytingartillaga frá allsherjar- og menntamálanefnd sem hefur haft málið til meðferðar um að fella út ákvæðið í 8. gr. sem varðar kostnað þeirra sem munu höfða mál í tengslum við samkomulag fjármálafyrirtækjanna og Samkeppniseftirlitsins um meðferð gengistryggðra lána. Það byggist á því að fjármálafyrirtækin eru tilbúin til að greiða þann kostnað sem fellur til við að höfða þau prófmál.

Þegar maður horfir á þetta mál í heild sinni verð ég að segja eitt. Ég hefði gjarnan viljað að við hefðum farið í vinnu við þetta mál og raunar fleiri, eins og t.d. breytingar á innheimtulögum sem við vorum að afgreiða núna áðan til 3. umr., strax og fyrsti gengislánadómurinn féll. Þá kallaði ég eftir því að tryggð yrði ákveðin flýtimeðferð á þeim málum og benti líka á að það mundi koma fram fjöldinn allur af málum. Auk þess hef ég stutt hv. þm. Álfheiði Ingadóttur í því að flytja ítrekað mál er varðar þetta gjafsóknarákvæði sem ætti að tryggja betur réttarstöðu fólks sem hefur, eins og hefur komið svo átakanlega skýrt í ljós eftir hrun, ekki verið gætt nægilega vel að á Íslandi.

Þótt hv. þm. Álfheiður Ingadóttir fari ágætlega í greinargerð sinni í gegnum sögu breytinganna á gjafsókninni, er einkar áhugavert að skoða umræðuna frá þeim tíma þegar þetta ákvæði er varðar úrlausn mála sem hafa verulega almenna þýðingu eða varði verulega miklu fyrir atvinnu, félagslega stöðu og aðra einkahagi umsækjenda, var tekið út úr lögunum árið 2005. Það er einmitt vísað til þess í áliti minni hluta allsherjarnefndar frá þeim tíma, að hægt sé að rekja sögu þessa ákvæðis raunar enn þá lengra til baka en til þeirra laga sem tóku gildi 1991. Í því nefndaráliti er rætt að í gildistíð eldri einkamálalaga hafi tíðkast að gjafsókn væri veitt í þeim tilvikum sem greinir í b-lið — sem við erum að ræða hér og var þá í gildi í lögunum — þ.e. þeim tilvikum ef mál hafði verulega almenna þýðingu eða varðaði verulega miklu fyrir atvinnu, félagslega stöðu eða aðra einkahagi umsækjenda. Heimildin var þó háð velvilja ráðherra sem gat hafnað umsókn þótt málið teldist mikilsvert. Við þá breytingu sem gerð var á einkamálalögunum 1991 hefur þetta væntanlegra verið sett í faglegra ferli með gjafsóknarnefndinni.

Það ákvæði sem við erum að leggja til að fari aftur inn í lögin hafði verið lagt fram nokkrum sinnum áður, í frumvarpi til laga um opinbera réttaraðstoð sem var lagt fram á 112. og 113. löggjafarþingi. Hugsunin á bak við þetta ákvæði hefur alltaf verið viðleitni löggjafans til að víkka út heimildir til ókeypis lögfræðiaðstoðar fyrir almenning sem ég held að við getum öll tekið undir, líka hæstv. innanríkisráðherra eins og hann gerði í ræðu sinni, að ekki er vanþörf á hér á landi, sérstaklega ef við berum okkur saman við nágrannalöndin eins og við viljum svo gjarnan gera. Þessi mál hafa aftur og aftur komið hingað inn á þing.

Hv. þm. Kolbrún Halldórsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, hélt ræðu um þetta mál á sínum tíma og kom inn á það hver væri fjöldi gjafsóknarmála. Það tengist efninu hér því við vitum öll að staða ríkisins hefur verið mjög erfið og allir hafa þurft að skera niður. Í ræðu sinni fer Kolbrún í gegnum þau svör sem þáverandi hv. þm. Jónína Bjartmarsdóttir fékk frá ráðherra um kostnaðarskiptingu milli a- og b-liða laganna sem varða gjafsóknina. Þar kom fram að gjafsókn var sjaldan veitt á grundvelli b-liðarins eða á milli 5 og 15% þeirra mála sem komu inn. Nefnt er sem dæmi að árið 1998 hafi gjafsókn verið veitt í 131 tilfelli á grundvelli a-liðarins, sem hefur með tekjumörkin að gera, en fjórum sinnum á grundvelli b-liðar og 12 sinnum á grundvelli a- og b-liðar sameiginlega. Sambærilegar tölur fyrir árið 2002, segir í þessu svari ráðherra, voru þær að 226 sinnum hafi gjafsóknarnefnd mælt fyrir gjafsókn á grundvelli a-liðarins, 22 sinnum á grundvelli b-liðarins — sá liður sem við deilum hér um — og sjö sinnum á grundvelli a- og b-liðar sameiginlega, og hefði mátt gera ráð fyrir að viðkomandi hefði fengið gjafsókn á grundvelli a-liðarins ef b-liðurinn hefði ekki verið til staðar. Samkvæmt þessum tölum ættu mál sem falla undir þetta ákvæði sem hér er verið að leggja til að komi aftur inn í lögin og tvær nefndir hafa farið yfir, að vera milli 5 og 15% af heildarfjölda málanna.

Það er líka einkar áhugavert í ræðu hv. þm. Kolbrúnar Halldórsdóttur að hún fer í gegnum það hvers konar mál það eru sem falla undir þetta ákvæði. Hún nefnir sem dæmi að þetta séu mál sem ríkið er að sækja, til dæmis fordæmismál þar sem ríkisskattstjóri tekur einn skattgreiðanda út úr hópi margra til að fá dómsniðurstöðu um tiltekið álitamál. Skattstjóri hefur einmitt verið þekktur fyrir að vilja fara með mál alla leið út af fordæminu sem það gefur varðandi aðra úrskurði. Þetta er raunar nokkuð sem ég hef talað fyrir að aðrar eftirlitsstofnanir ættu að gera í auknum mæli til að fá niðurstöðu á því hvernig dómstólar túlka þau lög sem við setjum á Alþingi. Þó að eftirlitsstofnanir og þeir sem eiga að framfylgja lögunum fyrir okkur, framkvæmdarvaldið, fái þá niðurstöðu fyrir dómstólum að það sem þeir hafi lagt til hafi verið rangt, þá fá þeir leiðbeiningu fyrir starf sitt um það hvernig eigi að framfylgja þeim lögum sem við setjum.

Í ræðu Kolbrúnar kemur fram að þessi fordæmismál frá ríkisskattstjóra fengu náð fyrir augum gjafsóknarnefndar og heyrðu undir b-liðinn sem var þá í lögum. Síðan nefnir hún mál þar sem aflahæfi fólks er skert og það þarf að fara í skaðabótamál við ríkið. Þar er ekki um að ræða venjuleg tryggingatjón heldur skaðabótamál þar sem tekist er á um sök. Einnig er um að ræða mál sem er fyllilega eðlilegt að viðkomandi fái gjafsókn í. Svo má nefna lóðamál, sveitarstjórnarmál ýmiss konar og almenn mál sem lúta að úrskurðum sem ráðherrar hafa gefið í álitamálum. Eitt af því sem var rætt mjög mikið árið 2005 var að þáverandi hæstv. dómsmálaráðherra væri með niðurfellingu þessa ákvæðis í raun að fella niður heimildina fyrir einstaklinga að lögsækja ráðherrana sjálfa. Þetta er mjög alvarlegt. Þá var bent á hvað það skipti miklu máli að hægt væri að tryggja réttarstöðu fólks gagnvart ríkinu, hinu opinbera. Í því samhengi vil ég nefna að með því að gera þá breytingu sem við erum að leggja til og var í gildi værum við á ný að tryggja þennan aðgang einstaklinga að dómstólum. Tvær nefndir hafa komið að vinnu okkar, annars vegar hefur nefndin lagt fram þessa breytingu og önnur nefnd farið yfir hana.

Í ræðu sinni vitnar hv. þm. Kolbrún Halldórsdóttir síðan í grein eftir núverandi hv. þm. Atla Gíslason og hæstaréttarlögmann sem hafði skrifað um gjafsókn í tímaritið Úlfljót þar sem hann fór í gegnum hvers konar mál þetta eru. Ég tel mikilvægt að árétta að sá skilningur sem þar kemur fram er minn skilningur líka og ég tel að þetta sé skilningur nefndarinnar. Og á því atriði sem kemur hér fram í greininni er einmitt verið að reyna að taka á í framhaldsnefndaráliti frá allsherjar- og menntamálanefnd. Með leyfi forseta ætla ég að fá að vitna í grein Atla Gíslasonar:

„Við mat á því hvort skilyrðum b-liðar 126. gr. sé fullnægt ber að hafa í huga að hún felur í sér frávik frá upphaflegum tilgangi gjafsóknarheimilda. Höfuðmarkmið gjafsóknar er að gera hinum efnaminni kleift að gæta réttar síns fyrir dómi.“ — Hér er þá átt við a-liðinn. „Öðrum verður ekki veitt hagræði gjafsóknar nema í undantekningartilvikum.“

Síðan segir hv. þm. Kolbrún Halldórsdóttir:

„Það eru sem sé undantekningartilvikin sem hér á að skera út.“

Við ítrekuðum í nefndaráliti okkar að þetta ákvæði var inni í þágildandi lögum og komin var tólf ára reynsla af beitingu þess og gjafsóknarnefnd beitti þessari heimild á mjög þröngan máta. Þannig að það frábæra starfsfólk sem starfar innan innanríkisráðuneytisins ætti að hafa nægan tíma til að móta reglugerðina sem byggist á þeim heimildum sem við erum að gefa ráðherra með þessari tillögu okkar, en við leggjum til að ákvæðið taki gildi 15. júlí.

Þótt ég hafi skilning á og samúð með sjónarmiðum hæstv. innanríkisráðherra tel ég í ljósi reynslunnar og þess áfellisdóms sem má segja að komi fram í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis yfir íslenskri stjórnsýslu, og einnig vegna þess sem við höfum verið að upplifa í tengslum við þá dóma sem hafa fallið um ólögmæti lána ýmiss konar, að það sé mjög mikilvægt til að við náum að þróa réttarkerfi okkar og löggjöf þannig að við tryggjum að fólk geti höfðað mál sem hafa annaðhvort verulega almenna þýðingu eða varða mjög mikilvæga hagsmuni fyrir viðkomandi einstaklinga.

Ég vil líka taka fram að það er Alþingi sem fer með fjárveitingavaldið samkvæmt stjórnarskránni (Gripið fram í: Löggjafarvaldið.) og löggjafarvaldið. Það erum við sem setjum lögin og við setjum líka fjárlögin og því er það okkar að fylgja eftir þessari stefnumörkun þegar fjárlögin koma inn í haust. Við þurfum að tryggja að hæstv. ráðherra fái auknar fjárheimildir og getum gert ráð fyrir, miðað við reynslu fyrri ára, 5–15% aukningu mála. Ég held að hæstv. ráðherra sé fyrst og fremst að kalla eftir því að hann fái fjárheimildir til að bregðast við neyð fólks þegar það þarf að sækja rétt sinn og þarf að standa á mannréttindum sínum. Ég efast ekki um að við munum bakka hæstv. ráðherra upp í því.