fjármálafyrirtæki.
Frú forseti. Ég skil hugsunina á bak við þessa tillögu og ég hefði viljað að hún gilti fyrir hlutabréfin líka en við verðum að laga formið fyrst. Fjöldi heimila í landinu hefur beðið mikið skipbrot vegna þess að peningar fóru í hring og myndaðar voru eignir sem ekki voru til staðar. Það er ég búinn að sýna fram á aftur og aftur. Það er ekki sæmandi að lokka fólk til að kaupa stofnbréf með slíkum aðgerðum sem hér er lagt til og lokka það þannig að það geti tapað öllu sínu stofnfé eins og gerðist. Ég get því ekki greitt atkvæði með þessari ágætu tillögu en legg hart að þingheimi að laga þá veilu sem er bæði í hlutafélagaforminu og stofnfjáreigendaforminu.