fjögurra ára samgönguáætlun 2011--2014.
Frú forseti. Ég fagna þeim áherslum sem eru í samgönguáætlun um að auka fjármagn til vegagerðar úti um land og hefur það verið áréttað í meðferð hv. umhverfis- og samgöngunefndar. Ég kem sérstaklega í ræðustól til að segja að ég legg fram eina breytingartillögu við samgönguáætlunina en það er að flýtt verði framkvæmdum sem gert er ráð fyrir að komi inn á seinni tímabil varðandi veginn norður í Árneshrepp, að honum verði flýtt um tvö ár. Það eru sömu fjárveitingar þar inni en gerð er tillaga um að flýta þeim framkvæmdum.
Vegalagning norður í Árneshrepp er eitt af metnaðarmálum þjóðarinnar allrar og að það gerist í nálægri framtíð. Það er ekki nóg að bjóða (Forseti hringir.) upp á áætlun á seinni hluta áætlunarinnar. (Forseti hringir.) Það er mjög mikilvægt að við tryggjum heilsársveg í Árneshrepp og að hann komi inn á fyrri hluta tímabilsins.