fjögurra ára samgönguáætlun 2011--2014.
Frú forseti. Í gegnum tíðina hef ég ekki blandað mér í samgönguáætlun eftir því mottói eða þeirri lífsskoðun að ég nota alla vegi landsins. Hins vegar finnst mér núna yfirgengilegt hvað menn ganga á hlut Reykjavíkursvæðisins því að hér á að draga framkvæmdir niður í ekki neitt. Þess vegna get ég ekki greitt þessari samgönguáætlun atkvæði. Svo langt er gengið.
Svo er annað, menn eru hér að eyða peningum sem þeir eru ekki búnir að afla. Ég minni á það að þetta reyndu Grikkir að gera og Spánverjar og ég get ekki staðið að slíkum loforðum inn í framtíðina þó að verkið sé mjög gott og gegnt.