140. löggjafarþing — 126. fundur, 19. júní 2012.
fjögurra ára samgönguáætlun 2011--2014.
392. mál
Virðulegi forseti. Þátttaka í þessari atkvæðagreiðslu byggist á því að ef vilji hæstv. ríkisstjórnar gengur eftir, um alvarlega og yfirþyrmandi nauðung á sjávarútvegi landsins, þarf ekki þá vegi sem verið er að tala um í samgönguáætlun vegna þess að fjöldi byggða landsins mun leggjast af. Þannig er þessi samgönguáætlun sýndarmennska og falsvon og í engu mark á henni takandi.