fjögurra ára samgönguáætlun 2011--2014.
Virðulegur forseti. Það tíðkaðist hér og hefur tíðkast að sveitarfélög hafa tekið þátt í verkefnum með Vegagerðinni og til þess að flýta verkefnum hafa sveitarfélögin greitt fyrir. Ég þekki það sem fyrrverandi sveitarstjórnarmaður í Mosfellsbæ að þannig var að verki staðið og síðan skuldbatt Vegagerðin sig til að borga til baka fjárútlát sveitarfélagsins. Hér er ljóst að ekki hefur verið við það staðið og það er dapurlegt að sjá að þingmenn skulu ekki vera tilbúnir að segja já við því að Vegagerðin standi við gerða samninga. Ég harma það að allir ráðherrarnir skuli segja nei við því að Vegagerðin, ríkisfyrirtækið Vegagerðin, segi nei við því að standa við gerða samninga, undirritaða samninga. Og það er dapurlegt að sjá hæstv. fjármálaráðherra segja nei við slíku.