fjögurra ára samgönguáætlun 2011--2014.
Frú forseti. Við 1. umr. um þetta mál kom fram hjá okkur þingmönnum Framsóknarflokksins að okkur þótti skorta á allan metnað í vegaframkvæmdum í landinu. Nú er búið að bæta örlítið í, Norðfjarðargöngin verða boðin út fljótlega og þótt fyrr hefði verið. Loforðin voru á þann veg að þær framkvæmdir ættu í raun að standa þar yfir nú þegar og það fyrir nokkuð löngu. Ég vil hins vegar vara við þeirri nálgun hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra og fleiri stjórnarliða að tengja þessar framkvæmdir veiðileyfagjaldinu. Hvaða skilaboð eru þetta til sjávarbyggða? Segjum sem svo að rekstrarskilyrði sjávarútvegsins muni versna á næsta eða þarnæsta ári, þýðir það þá að ekkert verði af þessum framkvæmdum? Að sjálfsögðu er þetta einfaldlega eitthvað sem við fjármögnum úr sameiginlegum ríkissjóði og þessi uppstilling er engan veginn boðleg íbúum í hinum dreifðu byggðum og við eigum ekki að tengja veiðigjaldið við þessar framkvæmdir. (Gripið fram í: Heyr, heyr.) [Kliður í þingsal.] (Forseti hringir.)