140. löggjafarþing — 126. fundur,  19. júní 2012.

fjögurra ára samgönguáætlun 2011--2014.

392. mál
[12:14]
Horfa

Árni Johnsen (S):

Virðulegi forseti. Ræða hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra áðan sýnir hvers lags falsvonir felast í þessu og sýndarmennska, þegar hann fór að hrósa sér af framkvæmdum sem áttu að byggjast á veiðileyfagjaldi sem ekki er búið að ákveða og sem ekki er búið að tryggja vegna þess að ráðherra getur ekki tryggt aflann úr sjónum. Hann leyfir sér að hrósa sér í þinginu (Forseti hringir.) af því …

(Forseti (ÁRJ): Hv. þingmaður geri grein fyrir atkvæði sínu.)

Af þeim ástæðum. Þess vegna, virðulegi forseti, er mjög erfitt að taka þátt í þessum leik. Auðvitað geta menn ekki verið á móti því að hefja framkvæmdir og viðbætur í byggingum á vegakerfi landsins en þetta er falsvon og sýndarmennska og í engu treystandi, ekki frekar en því að við búum við norrænt velferðarkerfi og annað slíkt á Íslandi.