fjögurra ára samgönguáætlun 2011--2014.
Hæstv. forseti. Ég fagna því að við erum í þann veginn að samþykkja samgönguáætlun til fjögurra ára. Ég held að óhætt sé að segja að áætlunin sé vönduð enda hafa margir komið að mótun hennar. Nefni ég þar samgönguráð með aðkomu allra stofnana samgöngukerfisins, svo og félagasamtök og einstaklinga á fundum og ráðstefnum sem efnt hefur verið til í mótunarferlinu. Ég nefni sveitarfélög og landshlutasamtök sveitarfélaga sem einnig hafa komið rækilega að málum, en að sjálfsögðu er útfærslan byggð á áherslum ríkisstjórnarinnar. Endahnútinn rekur síðan Alþingi undir verkstjórn samgöngunefndar þingsins. Það er mikilvægt að leggja áherslu á þetta lýðræðislega ferli sem nú er orðið faglegra, opnara og víðtækara en áður var þegar alþingismenn komu að þessum málum fyrst og fremst á grundvelli kjördæma sinna. Þessi breyting er til góðs. Áherslurnar í þessari áætlun eru á eflingu almenningssamgangna og að auka öryggið (Forseti hringir.) í samgöngukerfinu. Ég tel að vel hafi tekist til, ekki síst með tilliti til bágs fjárhags ríkissjóðs.