fjögurra ára samgönguáætlun 2011--2014.
Frú forseti. Að lokum eru það að sjálfsögðu fjárheimildir í fjárlögum sem ráða því hvað til ráðstöfunar er í framkvæmdir sem og önnur útgjöld ríkisins á hverju ári. Hér er sett upp samgönguáætlun þar sem lagðar eru línur og verkefnum forgangsraðað. Rökin fyrir því að horfa til tekna af sérstöku veiðigjaldi til framkvæmda eru meðal annars og ekki síst þau að þær tekjur geta orðið sveiflukenndar á komandi árum. Þar af leiðandi er efnahagslega mun skynsamlegra að horfa til stofnkostnaðar eða framkvæmda varðandi slíkar tekjur en að ráðstafa þeim beint í rekstur. Framvindu- og framkvæmdahraða í slíkum verkefnum er auðveldara að stilla af miðað við tekjustreymið en að draga saman eða auka almennan rekstur á víxl. Þess vegna eru traust efnahagsleg skynsemisrök fyrir því að horfa til viðbótartekna af sérstöku veiðigjaldi í góðu árferði til sjávarins í framkvæmdir af þessu tagi til stofnkostnaðar og framkvæmda fremur en til rekstrarþátta. Það er auðvelt að færa fram sannfærandi rök fyrir því að hér er staðið hyggilega að málum og ástæða til að gleðjast yfir því að (Forseti hringir.) horfur eru góðar hvað næstu ár snertir, á að þessi tekjustofn muni verða traustur. Þeir sem áhuga hafa gætu farið inn á veg Hagstofunnar frá því í morgun og kíkt á aflaverðmæti íslensks sjávarútvegs (Forseti hringir.) fyrstu þrjá mánuði þessa árs.