140. löggjafarþing — 126. fundur,  19. júní 2012.

samgönguáætlun 2011--2022.

393. mál
[12:35]
Horfa

Höskuldur Þórhallsson (F):

Virðulegi forseti. Ég styð þessa breytingartillögu og er einn af meðflutningsmönnum hennar. Það skiptir miklu máli að við hefjum rannsóknir fyrir væntanleg jarðgöng undir Fjarðarheiði. Ég vil líka benda á að það er mikill ferðamannastraumur í gegnum Seyðisfjörð á hverju ári með Norrænu. Við eigum að horfa til framtíðar og Fjarðarheiðargöng tilheyra henni svo sannarlega.