140. löggjafarþing — 126. fundur,  19. júní 2012.

samgönguáætlun 2011--2022.

393. mál
[12:36]
Horfa

Jónína Rós Guðmundsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ég hvet hv. þingmenn til að skoða þessa tillögu mjög jákvætt því að hún kallar ekki á neinn aukinn kostnað. Hún kallar eingöngu á þá hugsun að við séum sífellt að hugsa um hvaða jarðgöng það séu sem eðlilegast er og best að fara í næst. Hér er lagt til að flýta rannsóknum á göngum undir einn hæsta fjallveg landsins sem er í yfir 600 metra hæð á 10 kílómetra kafla. Ég legg til að þingmenn skoði þetta mjög vel, það er enginn kostnaðarauki í þessu falinn, aðeins lagt til að við horfum til framtíðar. Við skuldum Seyðfirðingum sem búa hinum megin við einn hæsta fjallveg landsins sem lokast í hverjum einasta mánuði að hraðað verði rannsóknum á þeirri jarðgangagerð. Það er ekki verið að kalla á neitt annað. Við eigum fullhönnuð Norðfjarðargöng og Dýrafjarðargöng. Það er mjög eðlilegt að næstu stóru jarðgangaframkvæmdir sem farið verði í verði Fjarðarheiðargöng. Þess vegna þarf að rannsaka það vel.