140. löggjafarþing — 126. fundur,  19. júní 2012.

útlendingar.

709. mál
[15:13]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Þuríður Backman) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Merði Árnasyni fyrir fyrirspurnina. Fyrirvari minn felst í því að við erum að framselja Frökkum það vald að hafna umsóknum um útgáfu vegabréfsáritana og það er endanleg ákvörðun á afgreiðslu málsins. Þó að málið sé lítið og varði hugsanlega fáa tel ég samt að þetta sé atriði sem eigi að hafa í huga og fjölda einstaklinga varðandi útgáfu vegabréfsáritana sem ég hefði viljað að nefndin hefði einhverjar hugmyndir um hversu marga snerti. Ef svar hefur komið varðandi hælisleitendur hefur það svar því miður farið fram hjá mér þannig að mér var ekki kunnugt um þær upplýsingar.