útlendingar.
Ég get upplýst hv. þingmann um að ég mun styðja framgang þessa máls. Það er búið að leita allra leiða til þess að fá Frakka til að halda óbreyttum samningi varðandi þjónustu við þá sem óska eftir vegabréfsáritun til Íslands. Það hefur ekki tekist og þetta er sú leið sem talin er sú besta, a.m.k. þar til önnur betri finnst.
Annars staðar á Norðurlöndunum hefur þessi þjónusta ekki verið þegin eða þau ekki farið undir þessa samninga við Frakka en að sjálfsögðu eru það sterkari lönd með meiri utanríkisþjónustu en við höfum bolmagn til. Það er mjög eðlileg skýring á afstöðu þeirra til þess að gangast ekki undir samsvarandi samninga við Frakka og við leggjum til að verði gerðir hér. Þessir samningar eru að öllum líkindum gerðir til ákveðins tíma. Frakkar hafa þjónustað okkur vel í utanríkisþjónustunni hvað varðar vegabréfsáritanir og ég tel enga hnökra á að þeir muni gera það áfram. Eins og ég segi er þetta bara spurning um þetta stjórnsýslulega framsal, að Frakkar hafi ákvörðunarrétt um að geta endanlega hafnað umsóknum. En mér finnst þetta vera til umhugsunar og tel því rétt að nefndin komi saman. Ég tek undir það hjá hv. þingmanni, nefndin ætti að koma saman milli 2. og 3. umr. og þá getur hún hugsanlega fengið betri upplýsingar um þessa stöðu.