140. löggjafarþing — 126. fundur,  19. júní 2012.

virðisaukaskattur.

666. mál
[16:12]
Horfa

Mörður Árnason (Sf) (andsvar):

Forseti. Við hv. þm. Birkir Jón Jónsson ræðum mikið um bleiur og ég vil nota tækifærið og óska þingmanninum til hamingju með þann nýfengna áhuga sinn. Ég veit að hann sprettur af ákaflega ánægjulegum viðburðum í lífi þingmannsins og þjóðarinnar og þarf ekki að hafa um það fleiri orð.

Þá er í framhaldinu að viðurkenna sæll og glaður á sig þá sök að hafa stuðlað að glufum í virðisaukaskattskerfinu. Hv. þingmaður verður þó að athuga að þar var um að ræða samjöfnun við prentbækur sem áður voru komnar niður í 7% skatt. Þinginu þótti rétt og tók leiðbeiningum mínum um það mjög vel að fara með raf- og vefbækur á sama stað í virðisaukaskattsstiganum. Ég vakti kannski ekki mikla athygli á því þá en þetta er auðvitað eitt af því sem gerist í virðisaukaskattskerfinu, og verður erfitt, að það er alltaf eitthvað sem má jafna við eitthvað annað. Í nánd við hvaða andlag sem vera skal, þannig að maður tali skattamál, er einhver annar hlutur sem er millimetrum frá og er ákaflega ósanngjarnt og óréttlátt að hljóti ekki sömu örlög og hitt. Þannig getur þessi undansláttarhneigð borist um allt kerfið og eyðilagt það. Ég tel að það hafi verið rétt hjá bæði mér og þinginu að samþykkja þetta á sínum tíma og tek undir að margir brugðust mjög vel við þessu. Þetta kom líka á réttum tíma vegna þess að einmitt þegar þingið samþykkti þetta var það að dreifast um samfélagið og á eftir að gera enn meira. Í heildina vil ég samt segja að ég tel að við verðum að halda virðisaukaskattskerfinu sem undanþágulausustu, þannig að maður noti langt orð og leiðinlegt, til að það geti lifað og til að skattprósentan geti farið niður.