140. löggjafarþing — 126. fundur,  19. júní 2012.

loftslagsmál.

751. mál
[17:35]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Þuríður Backman) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti frá meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar um frumvarp til laga um loftslagsmál.

Varðandi vinnu þessa máls er rétt að geta þess að fyrir nefndina komu fjölmargir umsagnaraðilar og gáfu góðar leiðbeiningar og umsagnir. Ég mun í grófum dráttum fara yfir nefndarálitið. Þetta er stór og mikill og nokkuð flókinn lagabálkur að hluta og vísa ég til nefndarálitsins til frekari skýringa og ítarlegri yfirferðar yfir málið, þ.e. ítarlegri en hægt er að gera á þeim tíma sem okkur er í raun ætlað að afgreiða málið á hér í dag.

Hæstv. forseti. Meiri hlutinn vill í upphafi árétta að um er að ræða afar viðfangsmikið frumvarp þar sem miklir hagsmunir eru í húfi. Frumvarpinu var vísað til nefndar eftir 1. umr. 27. apríl sl. Í ljósi þess hefur nefndin haft takmarkaðan tíma til að fjalla um málið en tilskipun 2009/29/EB og fylgigerðir hennar verða væntanlega teknar upp í EES-samninginn á næstu mánuðum. Að mati meiri hlutans er því nauðsynlegt að hraða afgreiðslu frumvarpsins og innleiða reglurnar í íslenskan rétt eins fljótt og verða má.

Tilgangur frumvarpsins er tvíþættur. Annars vegar er lagt til að sett verði heildarlöggjöf á sviði loftslagsmála í þeim tilgangi að gefa þeim tilhlýðilegan gaum sem sjálfstæðum málaflokki meðal umhverfismála. Hins vegar er lagt til að innleiddar verði reglur um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir sem eru hluti af EES-samningnum. Frumvarpinu er ætlað að leysa af hólmi lög nr. 65/2007, um losun gróðurhúsalofttegunda. Fram komu þau sjónarmið að réttara væri að um viðskiptakerfið giltu sérstök lög. Eðlilegra væri að viðskiptakerfið og breytingar á því fengju að þróast eftir samevrópskum reglum en almenn ákvæði yrðu í sérstakri löggjöf. Meiri hlutinn bendir á að loftslagsmál hafa verið ört vaxandi málaflokkur hin síðustu ár. Ýmsar reglur hafa nú þegar verið teknar upp í íslenska löggjöf á því sviði, án þess þó að til sé heildarlöggjöf um málaflokkinn. Reglur EES- samningsins um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir eru stór þáttur af þessari löggjöf. Það er mat meiri hlutans að mikilvægt sé og í raun löngu tímabært að loftslagsmálum sé mörkuð viðeigandi stefna með heildarlöggjöf eins og hér er lagt til.

Umhverfisstofnun fer með framkvæmd laganna og er lögbært stjórnvald vegna viðskiptakerfis ESB með losunarheimildir. Jafnframt er stofnunin landstjórnandi vegna skráningarkerfis íslenska ríkisins. Stjórnvaldsákvarðanir Umhverfisstofnunar samkvæmt 8. gr. eru kæranlegar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála en aðrar stjórnvaldsákvarðanir stofnunarinnar samkvæmt lögunum og reglugerðum sem settar eru með stoð í þeim eru kæranlegar til ráðherra. Meiri hlutinn bendir á að hér er um að ræða frávik frá þeirri meginreglu laganna að stjórnvaldsákvarðanir sem þau kveða á um sé hægt að kæra til ráðherra. Í ljósi þeirra tengsla sem eru á milli losunarleyfa og starfsleyfa fyrirtækja tekur meiri hlutinn undir að eðlilegt sé að sama stjórnvald fjalli um stjórnsýslukærur er varða þau.

Úrskurðarnefnd í umhverfis- og auðlindamálum var sett á fót með lögum árið 2011, en lögin öðluðust gildi 1. janúar 2012. Í 2. mgr. 4. gr. laganna kemur fram að kærufrestur er einn mánuður frá því að kæranda varð kunnugt eða mátti vera kunnugt um ákvörðunina. Það á þó ekki við ef mælt er fyrir um annan kærufrest í þeim lögum sem kæranleg ákvörðun byggist á. Sé um að ræða ákvarðanir sem sæta opinberri birtingu telst kærufrestur frá birtingu ákvörðunar.

Meiri hlutinn kynnti sér í þessu sambandi álit umboðsmanns Alþingis. Helstu niðurstöður athugunar umboðsmanns Alþingis voru að nefndir með lögmæltan afgreiðslutíma og nefndir með reglur um afgreiðslutíma afgreiði tæplega helming mála innan tilskilins frests og vísbendingar eru um að afgreiðslutíminn sé að lengjast. Það er mat meiri hlutans að meiri reynsla þurfi að komast á starfsemi úrskurðarnefndarinnar áður en bætt verður við hana fleiri málaflokkum. Meiri hlutinn tekur jafnframt undir nefndarálit meiri hluta umhverfisnefndar um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fullgildingar Árósasamningsins og frumvarp til laga um úrskurðarnefnd auðlindamála þar sem áhersla er lögð á að gangskör verði gerð að því að ljúka málsmeðferð í úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála og hugað verði að sérstakri fjárveitingu í því skyni. Nefndin fékk einnig þær upplýsingar að vinna væri í gangi á vegum forsætisráðuneytisins um mótun stefnu hjá þeim úrskurðarnefndum sem til staðar eru. Í ljósi þeirra hagsmuna sem uppi eru, meginreglna stjórnsýslulaga og þeirra sérreglna sem gilda um störf úrskurðarnefnda telur meiri hlutinn rétt að hvetja til að þeirri vinnu verði hraðað eins og kostur er.

Nokkur gagnrýni kom frá umsagnaraðilum á að kærufrestur vegna ákvarðana Umhverfisstofnunar væri hafður skemmri en venja er samkvæmt almennum stjórnsýslureglum, eða tvær vikur. Meiri hlutinn vill í þessu sambandi benda á að þær ákvarðanir sem hafa þennan stutta kærufrest eru þess eðlis að Umhverfisstofnun þarf að hlíta þeim þrönga tímaramma sem kveðið er á um í reglum viðskiptakerfis ESB um losunarheimildir. Viðskiptakerfið er samevrópskt og er gert ráð fyrir að tilteknar upplýsingar berist frá öllum ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins á sama tíma og tilteknar skyldur séu uppfylltar af öllum fyrirtækjum á svæðinu á sama tíma. Einnig bendir meiri hlutinn á að vert sé að hafa í huga að þessar ákvarðanir snerta oft mikla fjárhagslega hagsmuni fyrirtækja og annarra sem í hlut eiga og er mikilvægt að þau geti sem fyrst fengið skorið úr ágreiningi. Meiri hlutinn áréttar einnig að mikilvægt er að sérstaklega sé gætt að andmælarétti samkvæmt 13. gr. stjórnsýslulaga í þeim tilvikum sem ákvarðanir geta verið íþyngjandi.

IV. kafli frumvarpsins gildir um þá rekstraraðila sem stunda starfsemi sem getið er um í I. viðauka við frumvarpið og heyra þar með undir gildissvið viðskiptakerfis ESB um losunarheimildir.

Í 8. gr. frumvarpsins er kveðið á um losunarleyfi rekstraraðila en gerð er krafa um að rekstraraðili sem stundar staðbundna starfsemi sem fellur undir gildissvið laganna hafi losunarleyfi. Sækja þarf um losunarleyfi til Umhverfisstofnunar en ráðherra er heimilt að setja reglugerð m.a. um niðurfellingu losunarleyfis. Í umsögn Umhverfisstofnunar komu fram ábendingar um að betur færi á því að tilgreind væri í lögunum skýr heimild stofnunarinnar til að fella niður eða afturkalla losunarleyfi þegar forsendur þess bresta eða starfsemi er hætt. Meiri hlutinn tekur undir þessi sjónarmið og leggur til breytingar varðandi það.

Í 10. gr. frumvarpsins er fjallað um skilyrði úthlutunar endurgjaldslausra losunarheimilda til rekstraraðila. Endurgjaldslausum losunarheimildum verður úthlutað til rekstraraðila vegna viðskiptatímabilsins 1. janúar 2013 til 31. desember 2020. Hjá umsagnaraðilum kom fram sú gagnrýni að skilyrði úthlutunar endurgjaldslausra losunarheimilda sem kveðið er á um í ákvæðinu legðu verulegar kvaðir á fyrirtæki sem undir það falla og var Steinullarverksmiðjan á Sauðárkróki sérstaklega nefnd í því sambandi. Fram kom í máli gesta að Steinullarverksmiðjan notar að langmestu leyti raforku sem ekki er framleidd með brennslu jarðefnaeldsneytis til framleiðslunnar og hlutfallslega miklu meiri raforku en flestir eða allir aðrir framleiðendur. Svipaðar verksmiðjur í Evrópu nota raforku sem að hluta til er framleidd úr jarðefnaeldsneyti. Þetta mun hafa í för með sér að Steinullarverksmiðjan verður að afla sér losunarheimilda á markaði næstu árin þar sem orkugjafi fyrirtækisins veldur nær engri losun gróðurhúsalofttegunda og vandséð hvar draga eigi úr losun. Frekar ætti að miða við rauntölur íslenskra raforkuvera þegar frádráttarliðir vegna losunar gróðurhúsalofttegunda við rafmagnsframleiðsluna eru reiknaðir.

Nefndin ræddi þessi mál sérstaklega. Hún fékk þær upplýsingar að viðskiptakerfið byggist á því að úthlutunarreglur séu alfarið samræmdar í ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins og að starfsstöðvar eigi að sitja við sama borð í samkeppnislegu tilliti. Meiri hlutinn vill einnig árétta að það er skýrt að ef íslensk stjórnvöld ætla að innleiða reglur um viðskiptakerfi ESB um losunarheimildir verður íslenska ríkið, eins og önnur ríki, að hlíta þeim reglum sem settar hafa verið, ekki er hægt að gera undanþágu hvað íslensk stjórnvöld varðar. Meiri hlutinn bendir á í þessu sambandi ákvæði um bann við ríkisstyrkjum, samkvæmt lögum sem gilda um Evrópska efnahagssvæðið. Sá leiðréttingarstuðull sem kveðið er á um í 5. mgr. 10. gr. er hinn sami fyrir alla Evrópu. Meiri hlutinn áréttar þó að í tilfelli Steinullarverksmiðjunnar er hann óhagkvæmur þar sem verksmiðjan er rafvædd og kolefnislosun af henni afar lítil. Verksmiðjan fær því ekki að njóta þess og hefur meiri hlutinn fullan skilning á þeim aðstæðum sem eru í þessu tilviki. Meiri hlutinn hvetur til þess að umhverfisráðuneytið skoði þessi mál sérstaklega með hliðsjón af 14. gr. er kveður á um sérreglur fyrir tilteknar starfsstöðvar.

Hæstv. forseti. Það er mikil vinna í umhverfisráðuneytinu að skoða allar mögulegar leiðir til að koma til móts við Steinullarverksmiðjuna vegna þessara ákvæða. Von okkar er að einhver viðhlítandi lausn finnist innan tíðar.

Í 1.–3. mgr. eru ákvæði um skyldu rekstraraðila til að vakta losun gróðurhúsalofttegunda frá starfsemi sinni í samræmi við vöktunaráætlun og árlega skýrslugjöf um losunina til Umhverfisstofnunar. Skili rekstraraðili ekki skýrslu um losun gróðurhúsalofttegunda eða ef hún er ófullnægjandi eða ekki vottuð hefur Umhverfisstofnun heimild til að áætla losun viðkomandi rekstraraðila á undangengnu almanaksári. Umhverfisstofnun hefur í þessu samhengi heimild til þess að áætla losun miðað við mestu mögulegu losun í viðkomandi starfsemi. Leggur meiri hlutinn fram tillögu um breytingar á ákvæði þessu í því skyni.

Sérreglur fyrir tilteknar starfsstöðvar er ákvæði sem heimilar ríkjum, að höfðu samráði við viðkomandi rekstraraðila, að undanskilja starfsstöðvar viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir sem annars ættu undir það að falla að uppfylltum ströngum skilyrðum. Gert er ráð fyrir því að þær starfsstöðvar sem undanþegnar verða gildissviði viðskiptakerfisins samkvæmt ákvæðinu skuli í staðinn greiða svokallað losunargjald. Alþingi er veitt svigrúm til að ákvarða fjárhæðina hverju sinni. Fram kemur í athugasemdum við ákvæðið að nauðsynlegt sé að kveða á um upphæð losunargjaldsins í lögum þar sem það hefur öll einkenni skatts. Það er mat meiri hlutans að ákvæðið uppfylli lagaáskilnað 40. og 77. gr. stjórnarskrárinnar en til nánari skýrleika leggur meiri hlutinn til að gjaldið skuli ákveðið með lögum.

Meiri hlutinn telur einnig rétt að jafnræði ríki með þeim fyrirtækjum sem falla undir 14. gr. frumvarpsins og þeim fyrirtækjum sem falla undir viðskiptakerfi ESB hvað varðar þann rétt að flytja losunarheimildir sínar á milli ára og leggur meiri hlutinn til breytingu þar að lútandi. Í 14. gr. er kveðið á um að rekstraraðilar sem óska þess að starfsstöðvar þeirra verði undanskildar gildissviði viðskiptakerfis ESB með losunarheimildir skuli eigi síðar en 15. júní 2012 senda umsókn þess efnis til Umhverfisstofnunar, en lagt er til að gerð verði breytingartillaga um þessa tímasetningu svo að rekstraraðilum gefist svigrúm til að ljúka við gerð umsókna eins og gefur að skilja þar sem 15. júní 2012 er liðinn.

Í IX. kafla frumvarpsins er að finna ákvæði um loftslagssjóð. Sjóðurinn á að hafa það hlutverk að styðja við verkefni sem stuðlað geta að samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda hér á landi, aðlögun að afleiðingum loftslagsbreytinga og aukinni þekkingu almennings á loftslagsbreytingum af mannavöldum og mögulegum aðgerðum til að sporna við þeim. Gert er ráð fyrir því að allar tekjur íslenska ríkisins af flugstarfsemi í viðskiptakerfinu og í það minnsta helmingur tekna af staðbundnum iðnaði í kerfinu renni í sjóðinn.

Íslensk stjórnvöld eru skuldbundin af ákvæði tilskipunar 2008/11/EB þar sem kveðið er á um skyldu til að verja tekjum af viðskiptakerfi ESB til loftslagsvænna verkefna. Meiri hlutinn bendir á að íslensk stjórnvöld eru þó ekki lagalega bundin af þessu ákvæði þar sem ráðstöfun ríkistekna fellur ekki undir gildissvið EES-samningsins nema sérstaklega sé um það samið. Jafnframt bendir meiri hlutinn á að mörkun ríkistekna bindur hendur fjárveitingavaldsins og skerðir þar með fjárstjórnarvald Alþingis. Engu að síður tekur meiri hlutinn undir þau sjónarmið frumvarpsins að eðlilegt sé að tekjum sem skapast af skyldu fyrirtækja til að standa skil á losunarheimildum og vegna losunar sinnar á gróðurhúsalofttegundum verði ráðstafað til verkefna sem sporna við þeim vanda sem loftslagsbreytingar af mannavöldum eru.

Einnig er lagt til að ráðherra skipi loftslagssjóði fjögurra manna stjórn til tveggja ára í senn. Gert er ráð fyrir að formaður og einn stjórnarmaður séu skipaðir af ráðherra án tilnefningar en hinir séu annars vegar tilnefndir af umhverfisverndarsamtökum og hins vegar af Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Fram kom hjá nokkrum umsagnaraðilum að í ljósi þeirra verkefna sem sjóðnum er ætlað að styrkja væri eðlilegt að einn stjórnarmaður væri tilnefndur af samtökum þeirra sem stunda ræktun, svo sem skógrækt eða landgræðslu. Með tilliti til þessara sjónarmiða leggur meiri hlutinn til að annar þeirra stjórnarmanna sem ráðherra skipar hafi sérþekkingu á sviði landgræðslu, skógræktar og endurheimtar votlendis.

Hlutverk loftslagssjóðs er að styrkja þróunarstarf og rannsóknir á sviði loftslagsvænnar tækniþróunar og nýsköpunar hér á landi, og sjóðurinn á að styrkja verkefni er lúta að kynningu og fræðslu á áhrifum loftslagsbreytinga og hlutverki almennings, stofnana og fyrirtækja í að sporna við loftslagsbreytingum og aðlagast þeim. Meiri hlutinn tekur undir sjónarmið umsagnaraðila að rétt sé að bæta við rannsóknarverkefnum sem hafa sama tilgang. Í þriðja lagi er sjóðnum ætlað að styrkja verkefni sem stuðla að endurheimt votlendis og verkefni sem stuðla að bindingu kolefnis í gróðri og jarðvegi.

Viðskipti með losunarheimildir byggjast á einkaréttarlegum samningum aðila og heyra undir almennar reglur um viðskipti með fjármálagerninga. Meiri hlutinn telur að tryggja verði að þau fyrirtæki sem heyra undir viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir geti keypt á markaði erlendis þær losunarheimildir sem þau þurfa samkvæmt frumvarpinu en nefndinni hefur verið gert ljóst að nægjanlegur fjöldi losunarheimilda muni ekki verða í boði hér á landi. Fram kemur í lögum um gjaldeyrismál að viðskipti og útgáfa verðbréfa, hlutdeildarskírteina í verðbréfa- og fjárfestingarsjóðum, peningamarkaðsskjala og annarra framseljanlegra fjármálagerninga eru óheimil milli landa. Af ákvæði 35. gr. frumvarpsins má sjá að viðskipti með losunarheimildir verða í eðli sínu sambærileg öðrum fjármagnsviðskiptum og fjármagnshreyfingum þeim sem varða við lög um gjaldeyrismál. Meiri hlutinn leggur til að sett verði bráðabirgðaákvæði um heimild Seðlabanka til að setja undanþágureglur sem gilda muni um fjármagnshreyfingar og gjaldeyrisviðskipti vegna viðskipta með losunarheimildir.

Í 36. gr. frumvarpsins er lagt til að staðfest verði að tilteknar losunarheimildir sem kunna að verða gefnar út í samræmi við ákvæði Kyoto-bókunarinnar vegna bindingar kolefnis í gróðri eða jarðvegi eða aðgerðum sem fela í sér endurheimt votlendis hér á landi skuli bókfærðar á reikning íslenska ríkisins í skráningarkerfi samkvæmt 22. gr. Með ákvæðinu er lagt til að lögfestur verði sá skilningur sem hefur verið hjá stjórnvöldum að losunarheimildir af þessu tagi skuli nýttar til að efna skuldbindingar ríkisins samkvæmt Kyoto-bókuninni. Við meðferð frumvarpsins í nefnd bárust umsagnir frá hagsmunasamtökum í landgræðslu og skógrækt þar sem ákvæðið var gagnrýnt. Þau sjónarmið komu fram að skógur væri eign skógarbónda eða landeiganda samkvæmt lögum um landshlutaverkefni í skógrækt og hann ætti þá rétt á því að eiga allan arð af honum, þar með kolefnisbindinguna.

Meiri hlutinn bendir á að í framkvæmd hefur verið viðurkennt að löggjöf sem sett er í þágu friðunar, náttúruverndar og umhverfisverndar geti sett nýtingarrétti landeiganda ýmsar almennar skorður bótalaust enda lúti þær að því að verja almannahagsmuni og samfélagslega hagsmuni í víðtækri merkingu. Meiri hlutinn áréttar því að íslenska ríkið ber þjóðréttarlegar skuldbindingar samkvæmt Kyoto-bókuninni og loftslagssamningi Sameinuðu þjóðanna um að stemma stigu við hættulegri röskun á loftslagskerfinu. En á grundvelli þess hefur verið komið á kerfi með viðskipti með kolefniskvóta og hefur íslenska ríkið upplýsingaskyldu um losun gróðurhúsalofttegunda af mannavöldum og bindingu kolefnis úr andrúmslofti með landgræðslu og skógrækt.

Samkvæmt skuldbindingum Kyoto-samningsins getur íslenska ríkið keypt losunarheimildir af öðrum ríkjum, en þarf ekki að kaupa heimildir af aðilum innan lands til að geta talið þær fram samkvæmt Kyoto-bókuninni. Hverju ríki er því í sjálfsvald sett hvort það setur upp innra markaðskerfi til að draga úr nettólosun en íslenska ríkið ákvað að gera það ekki á fyrsta skuldbindingartímabili Kyoto-bókunarinnar 2008–2012. Íslensk stjórnvöld hafa heimild til að úthluta losunarkvóta til starfsemi sem losar meira en 30 þús. tonn af kolefni árlega. Þau fyrirtæki sem fá úthlutað heimildum geta ekki selt þær.

Frekar er greint frá stöðu íslenska ríkisins gagnvart Kyoto-bókuninni. Mikilvægt er að allar upplýsingar um þau atriði sem varða skuldbindingar og lögin þegar þau hafa tekið gildi verði aðgengilegar almenningi. Umhverfisstofnun skal birta opinberlega ákvarðanir um úthlutun losunarheimilda í viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og skýrslur aðila sem heyra undir gildissvið kerfisins um losun gróðurhúsalofttegunda skulu vera aðgengilegar almenningi.

Hæstv. forseti. Eitthvað mun utanumhald þetta kosta en Umhverfisstofnun verður heimilt að innheimta gjöld fyrir verkefni sín. Umhverfisstofnun hefur samkvæmt frumvarpinu umsjón með skráningarkerfi sem er starfrækt samkvæmt alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins og reglum samningsins um Evrópska efnahagssvæðið um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir. Skráningarkerfið er umfangsmikill rafrænn gagnagrunnur þar sem skráðar eru upplýsingar um stöðu og hreyfingar losunarheimildar ríkja.

Hér er ákvæði um þvingunarúrræði og viðurlög. Í XIII. kafla frumvarpsins er lagt til að Umhverfisstofnun verði veitt heimild til að leggja á dagsektir til að knýja fram efndir á tilteknum skyldum samkvæmt frumvarpinu en þær geta numið allt að 100 þús. kr. á dag. Í 3. mgr. 40. gr. frumvarpsins kom fram að dagsektir gætu numið allt að 500 þús. kr. á dag þar til úr væri bætt og tekur meiri hlutinn undir þá skilgreiningu að dagsektir geti verið allt að 500 þús. kr. og kemur það fram í breytingartillögu. Eins verði Umhverfisstofnun heimilt að stöðva starfsemi rekstraraðila ef hann stundar starfsemi sem uppfyllir ekki skilyrði þessara laga.

Í 45. gr. frumvarpsins er fjallað um refsiviðurlög. Meiri hlutinn bendir á að ákveðinn óskýrleiki felist í því að ekki er fyllilega ljóst hvenær ákvæði 45. gr. verði beitt um ákvörðun viðurlaga og hvenær ákvæði 43. gr. um stjórnvaldssektir verði beitt. Meiri hlutinn bendir því á að skörun ákvæðanna feli í sér að forræði á meðferð máls og valdheimildirnar eru fengnar tveimur aðilum í stjórnsýslunni, þ.e. Umhverfisstofnun ákvarðar stjórnvaldssektir og lögregla og ákæruvald fara með meðferð sakamáls. Það er mat meiri hlutans að nauðsynlegt sé að skoða vel samspil þessara valdheimilda, þ.e. ákvæði 43. og 45. gr. frumvarpsins. Beinir meiri hlutinn því til umhverfisráðherra að hann kanni hvort breytinga sé þörf í þessum efnum.

Nefndin ræddi nokkuð um skattheimtu og breytingar á öðrum lögum. Nokkrar umræður urðu í nefndinni um kolefnisgjald í tengslum við frumvarp um breytingu á ýmsum lagaákvæðum um skatta og gjöld.

Hæstv. forseti. Í því nefndaráliti sem ég hef nú farið yfir, á þskj. 1528, er gerð grein fyrir þeim breytingartillögum sem ég nefndi flestar í framsögu minni. Ég legg áherslu á að þetta er mikið hagsmunamál. Í fyrsta lagi erum við hér komin með heildarlöggjöf um loftslagsmál og í öðru lagi erum við með þessu frumvarpi að gera Íslandi mögulegt að vera þátttakandi í þeim loftslagskvótum sem verða gefnir út á næstu mánuðum.