loftslagsmál.
Hæstv. forseti. Ég held að málið endurspegli með vissum hætti þann vanda sem þingið stendur frammi fyrir þegar mjög mörg stór mál, jafnvel tugir stórra mála, eru lögð fram á lokadegi þess frests sem veittur er til framlagningar nýrra mála. Þetta mál hefur ekki fengið nægilega mikla umfjöllun í þinginu þrátt fyrir að nefndin hafi vissulega reynt að skoða þá þætti sem teknir hafa verið sérstaklega út úr, steinullina og skógræktina, nú á lokadögum þingsins. Reynt hefur verið reynt að skoða þá þætti og kanna hvort hægt sé að koma til móts við athugasemdir sem gerðar hafa verið.
Í grundvallaratriðum er vandinn sá að undir vorið, um mánaðamótin mars/apríl, kemur mikill fjöldi mála úr ráðuneytunum í þingið. Sum þeirra eru mikilvæg út frá tímafaktor og sum út frá öðrum forsendum. Önnur eru það ekki. Það er ekki fyrr en liðið er töluvert langt fram á vor að forgangsröðunin fer að skýrast og menn fara að átta sig á því hvað þarf raunverulega að klárast og hvað ekki.
Það má segja að vinnubrögð ríkisstjórnarinnar í þessum efnum leiða til þess að það verður ákveðið umferðaröngþveiti í þinginu á vorin vegna þess að mál koma seint fram. Í vor var óvenjumikið af stórum, viðmiklum og umdeildum málum sem komu fram á þessum lokadegi. Það leiðir til þess að sum fá ekki afgreiðslu og önnur eru ekki unnin með þeim hætti (Forseti hringir.) sem ákjósanlegt væri.