140. löggjafarþing — 127. fundur,  19. júní 2012.

veiðigjöld.

658. mál
[20:31]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta atvinnuvn. (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég er aðili að minnihlutaálitinu eins og fram kom hjá hv. þm. Einari K. Guðfinnssyni og stend þar af leiðandi við hvert orð sem hann flutti. Þrátt fyrir að þær breytingar sem meiri hluti atvinnuveganefndar hefur gert séu flestallar til bóta munum við hins vegar ekki styðja þær þegar til atkvæðagreiðslu kemur. Við teljum að sú aðferðafræði sem hér er viðhöfð, útfærslan og annað sem því tengist, sé á þá lund að við munum greiða atkvæði gegn frumvarpinu og munum ekki bera ábyrgð á þessum tillögum.

Að mati okkar í minni hluta atvinnuveganefndar og margra sem hér hafa talað er málið algerlega óviðunandi. Óvissa er um afleiðingarnar og mjög erfitt fyrir þingmenn að taka ákvörðun án þess að hafa fengið í hendur greinargerð sérfræðinga sem þó skoðuðu málið á sínum tíma. Það er athyglisvert að allir þeir fjölmörgu sem tjáðu sig — fræðimenn, lögmenn, endurskoðendur, launþegar, sveitarfélög — komust að þeirri niðurstöðu að áhrif frumvarpsins yrðu mjög neikvæð og afleit þegar þau væru skoðuð í samhengi við frumvarp til nýrra fiskveiðistjórnarlaga sem þó er sem betur fer búið að ýta til hliðar og setja í ákveðið samráðsferli.

Í fylgiskjali sem minni hlutinn lætur fylgja með, yfirlýsingu um afgreiðslu og meðferð þess frumvarps, kemur fram að vissulega er búið að taka út marga af verstu göllunum. En það er slæmt að við skulum ekki hafa fengið sérfræðinga til að fara yfir þetta. Það sýnir þá tímapressu sem málið lenti í vegna þess hversu seint það kom hingað inn. Vinnubrögðin eru algerlega forkastanleg.

Að okkar mati er sú aðferð sem beitt er samkvæmt frumvarpinu hrein og klár kórvilla og getur hvorki talist eðlileg, sanngjörn né staðist jafnræði. Hægt er að gera margar athugasemdir við aðferðafræðina. Til að mynda er þorskígildi fráleitt viðmið og í áðurnefndu fylgiskjali er tekið fram að veiðigjaldsnefndin á meðal annars að skoða hvort ekki sé eðlilegt að breyta þessari útfærslu á þorskígildum og skoða fisktegundir. Veiðigjaldsnefndin skal einnig taka álagningarprósentuna til skoðunar í vinnu sinni við mat á forsendunum. Það er líka hluti af fylgiskjalinu, sem hæstv. forsætisráðherra og hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skrifuðu upp á, að verði óvæntur aflabrestur, verðfall á mörkuðum eða veiðigjaldsnefnd uppgötvar skekkju í forsendunum við mat á auðlindarentu verði álagning endurskoðuð fyrir þriðja eða í síðasta lagi fjórða gjalddaga næsta fiskveiðiárs, þ.e. á því gjaldi sem hér er lagt til, 12,7 milljarðar, og verður að hámarki 13,8. En verði eitthvað af því sem ég nefndi skal veiðigjaldsnefndin endurskoða það fyrir þriðja og fjórða gjalddaga.

Við höfum einnig fjallað nokkuð ítarlega um innheimtuna og lagt til breytingar. Innheimtan er hörð og gæti dregið fram alvarlegustu afleiðingar frumvarpsins strax í október eða nóvember. Meiri hlutinn hefur að einhverju leyti komið til móts við þetta. Ég skil hins vegar ekki svör stjórnvalda þess efnis að ekki sé hægt að beita sér fyrir því að menn greiði eftir á, við löndun á afla, heldur þurfi fyrirframgreiðsla að koma til. Ég skil ekki af hverju það er ekki hægt og tel það mjög sérkennilegt.

Í framsögu hv. þm. Björns Vals Gíslasonar var nefnt að samráðshópur fimm þingmanna eigi að vinna með veiðigjaldsnefnd til þess meðal annars að fara yfir öll þessi verkefni. Satt best að segja er sú tillaga meiri hlutans að færa nánast heildarendurskoðun á þessum lögum inn í nefndarálitið og setja fram breytingartillögu þess efnis að veiðigjaldsnefndin eigi strax að skoða allar útfærslur og aðferðafræði viðurkenning á því að aðferðafræðin er vonlaus og gengur ekki upp. Það þarf að skoða hana betur.

Við framsóknarmenn höfum haft uppi þá stefnu og talið eðlilegt að hluti þess gjalds sem til verður á auðlindasvæðinu verði þar eftir, verði ekki skattlagður og settur í ríkissjóð á höfuðborgarsvæðinu heldur verði nýttur í heimabyggð. Tillaga hv. þm. Atla Gíslasonar og Jóns Bjarnasonar, sem þeir leggja hér fram, verður væntanlega skoðuð jákvæðum augum við atkvæðagreiðsluna af okkur framsóknarmönnum.

Frú forseti. Það er margt óeðlilegt í þessu máli. Ég hef nefnt þorskígildið. Um er að ræða skatt en ef þetta gjald ætti að vera greiðsla fyrir aðgang að auðlind væri sanngjarnt að allir greiddu jafnt. Það væri líka eðlilegt að skuldastaðan hefði ekki áhrif á þá gjaldskyldu að gjaldið miðaðist við landaðan afla eins og ég sagði. Þetta er augljóslega sérstakur skattur á atvinnulíf á landsbyggðinni. Þetta kippir í burtu öllum hvata til að efla landvinnslu og þróa og ég óttast að þetta komi í veg fyrir nauðsynlegar fjárfestingar og framþróun atvinnugreinarinnar til mikils tjóns fyrir land og þjóð. Ég lýsi andstöðu við frumvarpið eins og það liggur fyrir þrátt fyrir breytingarnar.