veiðigjöld.
Frú forseti. Ég kem hingað við lok þessarar umræðu um veiðigjöld til að mæla fyrir breytingartillögu okkar hv. þm. Atla Gíslasonar um veiðigjaldið þar sem við leggjum til að 50% tekna af veiðigjaldi hvers fiskveiðiárs renni til ríkissjóðs og þá samkvæmt þeim markmiðum sem tilgreind eru í frumvarpinu um tilgang veiðigjaldsins. 40% tekna af veiðigjöldum hvers fiskveiðiárs skulu renna til þess sveitarfélags eða landshlutasamtaka þar sem skip eru skráð og 10% í rannsóknasjóð til að auka verðmæti sjávarfangs, AVS-sjóðinn, með það að markmiði að stuðla að rannsóknum, nýsköpun og þróun ásamt markaðsmálum í íslenskum sjávarútvegi.
Frú forseti. Við leggjum áherslu á að þegar verið er að leggja á gjöld sem þessi sem munu koma beint og óbeint niður á þeim samfélögum þar sem þessi gjöld verða innheimt sé sleginn þessi varnagli og horft til sjávarbyggðanna um að hluti af þessum gjöldum renni til þeirra sjálfra. Við höfum áður flutt ræður og rökstutt þetta mál. Við höfum áhyggjur af stöðu sjávarbyggðanna, margar þeirra hafa farið halloka á undanförnum árum, sérstaklega þær minni. Það er hlutverk okkar að flytja frekar frumvörp til að treysta stöðu sjávarbyggðanna og rétt þeirra til að njóta auðlindar sinnar, til að njóta fisksins sem syndir meðfram ströndum landsins og gæti verið unninn þar, í sjávarbyggðunum vítt og breitt um landið. Það er ekki vitað með hvaða hætti hægt væri að gjaldtaka sjávarbyggðirnar án þess að menn sæju fyrir afleiðingarnar af gjaldheimtunni.
Það er sjálfsagt og eðlilegt að sjávarútvegurinn sem og aðrir greiði gjöld til samfélagsins. Við höfum skattalög. Það eru í gildi lög um ákveðið veiðigjald en sú leið sem hér er farin, að taka beint gjald af sjávarútveginum til ríkisins, er nýlunda. Það er ekki samkvæmt gildandi lögum og framkvæmdin er allt önnur.
Ég treysti því að ég fái stuðning frá fleirum en okkur hv. þingmönnum sem flytjum málið. Hv. þm. Illugi Gunnarsson spurði um stefnu Vinstri grænna í þessum efnum og það er alveg hárrétt að ekki hafa verið áherslur af hálfu Vinstri grænna á auðlindagjöld eða veiðigjöld. Ég minnist þess ekki að það standi einu sinni í Hafinu bláa sem er stefna Vinstri grænna í sjávarútvegsmálum. Við viljum hins vegar treysta stöðu sjávarbyggðanna sjálfra, fólksins þar, útvegsins og útgerðanna. Það er markmið Vinstri grænna en ekki það eingöngu með hvaða hætti er hægt að skattleggja og draga inn peninga frá þessum samfélögum. Það er alveg hárrétt sem hv. þm. Illugi Gunnarsson kom inn á, þetta er grundvallaratriði í stefnu Samfylkingarinnar. Það hefur verið tekist á um þetta, það er alveg hárrétt. Það er líka alveg hárrétt hjá hv. þm. Illuga Gunnarssyni að stefna Samfylkingarinnar hefur orðið ofan á við samningu þessa frumvarps. En við leggjum áherslu á það, við hv. þm. Atli Gíslason, að hluti af teknu veiðigjaldi renni einmitt til sjávarbyggðanna.
Ég held að það verði að minna á vinnuna við þetta frumvarp, ég vil leyfa mér að koma aðeins inn á það, m.a. það frumvarp sem ég lagði fram sem sjávarútvegsráðherra vorið 2011. Öll ríkisstjórnin stóð þá að því þó að ýmsir hefðu sitthvað við málið að athuga. Það kom inn í þingið. Það var töluvert öðruvísi uppbyggt en það sem hér er ræðir. Þar var veiðigjaldið hluti af heildarumgjörð sjávarútvegsins. Veiðigjöldin voru hluti af fiskveiðistjórnarlögunum en ekki flutt sem sérstakt frumvarp eins og hér er gert. Ég tel það ekki rétt eins og hér er að verki staðið.
Þess er líka skemmst að minnast þegar bæði forsætisráðherra og núverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra töldu nauðsynlegt að setja málið í allt annan farveg en það var í á haustdögum. Núverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, þáverandi fjármálaráðherra, sagðist geta gert þetta á þrem vikum. Þau vinnubrögð sem voru viðhöfð á haustdögum, og ég tel hafa verið til fyrirmyndar, kallaði forsætisráðherra óboðleg. Ég veit ekki hvað forsætisráðherra kallar vinnubrögðin sem hér eru viðhöfð. Við sitjum uppi með frumvarp um veiðigjöld sem er búið að ganga í gegnum miklar hremmingar og breytingartillögurnar sem því fylgja sýna hversu illa unnið það var. Ég held að þeir sem að því standa verði bara að játa það að þetta var illa unnið frumvarp þegar það kom inn í þingið. Breytingartillögurnar og umfjöllunin um frumvarpið staðfesta það enda var framvinda málsins sett í sérstaka veiðigjaldsnefnd sem átti að reyna að leysa úr því og sjá hvernig málið yrði unnið áfram. Ég verð að segja, frú forseti, að þessi vinnubrögð dæma sig sjálf og er í sjálfu sér engin ástæða til að hlakka yfir því. Ég er reyndur maður og verð að segja að menn ættu að hafa færri orð um það hversu auðvelt sé að semja frumvarp um sjávarútvegsmál. Sumir sem voru búnir að samþykkja málið í ríkisstjórn sögðu nokkrum dögum síðar að frumvarpið væri bílslys. (BJJ: Nákvæmlega.) Ég kann ekki að meta svona vinnubrögð eða svona framkomu, ég verð bara að segja það. Málið má í sjálfu sér fá eðlilega vinnu og það má gagnrýna það en þá eiga menn að gera það á sanngjörnum og málefnalegum nótum. (BJJ: Þetta er hneyksli.)
Við erum að tala um að hluti af veiðigjaldinu renni til sjávarbyggðanna og þá verð ég bara að minna á að núverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sagði árið 1997 um veiðigjaldið sem þá var til umræðu, með leyfi forseta:
„Skatturinn er óréttlátur með tilliti til byggðanna í landinu. Þar sem útgerð vegur þungt kæmi þessi nýi skattur harkalega niður, en í öðrum þéttbýliskjörnum yrðu menn hans jafnvel ekkert varir. Þetta er óréttlátur skattur nema hann renni beint til sveitarfélaganna aftur, þar sem hann var innheimtur.“
Þetta voru þá orð núverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Þetta er kannski besta röksemdin fyrir þeim tillögum sem ég flyt hér því að ég er trúr málstaðnum í þessum efnum (Gripið fram í.) og ég er trúr því að við eigum að standa vörð um sjávarbyggðirnar. (Gripið fram í: Á síðustu …) Núverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sagði líka af sama tilefni, með leyfi forseta:
„Veiðigjald mundi líklega leiða til samþjöppunar og fækkunar eininga; möguleikar smáfyrirtækja og einyrkja yrðu minni. … Þó mikilvægt sé að eiga stór og öflug sjávarútvegsfyrirtæki verðum við líka að eiga smáfyrirtæki og halda í fjölbreytnina.“
Þetta eru nákvæmlega þau rök sem við hv. þm. Atli Gíslason höfum fyrir þeirri breytingartillögu sem við flytjum hér um að farið verði varlega í stórtæk veiðigjöld, að menn átti sig á áhrifunum. Það er sjálfsagt að sjávarútvegurinn borgi eins og aðrar atvinnugreinar og leggi sitt af mörkum en menn verða að sjá fyrir afleiðingarnar og það hefur ekki verið gert við samningu þess frumvarps sem hér liggur fyrir.
Frú forseti. Þetta skulu verða lokaorð mín í þessum efnum. Ég legg áherslu á að þegar veiðigjöld verða hækkuð verði horft til minni sjávarbyggðanna um hvaða afleiðingar það hefur fyrir þær og hvernig megi þá koma þessum tekjum aftur til þeirra. Það er samkvæmt stefnu Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs að standa þannig vörð um sjávarbyggðirnar, sérstaklega þær minni og meðalstóru sem eiga svo sannarlega í vök að verjast. Breytingartillaga okkar hv. þm. Atla Gíslasonar er einmitt flutt til þess að treysta stöðu sjávarbyggðanna í landinu.