140. löggjafarþing — 128. fundur,  19. júní 2012.

fundarstjórn.

[23:13]
Horfa

Ólína Þorvarðardóttir (Sf):

Frú forseti. Ég vil líkt og aðrir hér gera athugasemd við að þetta mál skuli ekki hafa verið sett á dagskrá. Ég vil líka gera athugasemdir við þá ófyrirleitni sjálfstæðismanna í þessu máli að lengi vel voru engar athugasemdir gerðar á fjölmörgum fundum þar sem fjallað var um málið og það var í raun og veru bara verið að þumbast í því.

Síðan fara skilyrðin loksins að koma fram á lokasprettinum. Þá er farið út í að teygja sig eins langt og hægt er til móts við þau skilyrði til að hægt sé að afgreiða málið. Það er gert á sama tíma og birtast í fjölmiðlum vikulega hryllilegar myndir af skemmdum eftir utanvegaakstur, og ferðasumarið fram undan. Markmið þessa frumvarps var meðal annars að setja skýrari og skarpari lagaramma um það. Nei, þá er hætt við og síðan kemst málið ekki á dagskrá. Þetta er auðvitað ekki nógu gott.

(Forseti (ÁRJ): Dagskráin liggur fyrir. Henni verður ekki breytt og forseti hyggst ljúka hér þingfundi fyrr en síðar.)