141. löggjafarþing — 2. fundur,  12. sept. 2012.

stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana.

[21:46]
Horfa

Mörður Árnason (Sf):

Forseti. Leikur að tölum, leikur að orðum, sagði hv. þm. Bjarni Benediktsson. Það er vissulega gott að leika sér en grundvöllur umræðu er að viðurkenna staðreyndir. Staðreyndirnar um stöðu efnahagsmála, um lífskjör þjóðarinnar, eru þær að núna erum við að ná okkur upp úr kreppunni. Allar vísbendingar eru í sömu áttina um þetta: Hagvöxtur, kaupmáttur launa, atvinnuþátttaka, skuldastaða og svo má lengi telja.

Staðreyndirnar tala. Staðreyndirnar segja okkur ekki að kreppan sé búin og að nú megi byrja upp á nýtt á næsta fylliríi, en þær segja okkur að það sé orðinn verulegur árangur við að endurreisa samfélag og hagkerfi eftir hrunið. Á alþjóðavettvangi er horft til Íslands sem fordæmis vegna þess að við, ríkisstjórnin og allir landsmenn, gerðum þetta í stórum dráttum eins vel og hægt er. Efnahagslífið komst aftur í gang án þess að niðurskurður, sem var nauðsynlegur, og kaupmáttarrýrnun bitnaði fyrst og fremst á lág- og meðaltekjufólki eins og víðast hvar í löndunum í kringum okkur. Með því að bjarga flestum alvörufyrirtækjum frá því að fara á hausinn tókst að koma böndum á atvinnuleysið. Þetta hefur gerst undir forustu jafnaðarmanna. Við höfum gert þetta á forsendum jöfnuðar og við höfum varið velferðarþjónustuna sem var bæði sanngjarnt og skynsamlegt

Þetta vekur athygli sérfræðinga innlendis og erlendis. Við fáum fyrir þetta hrós frá erlendum forustumönnum en nokkrir eru samt óánægðir, eru í fýlu yfir batanum, forustumenn Sjálfstæðisflokksins og framkvæmdastjóri SA eru í nýrri fýlu sem mætti kalla bata-fýlu. Það er sorglegt en við hin skulum virða þetta við þá og halda áfram.

Forseti. Það er auðvitað algerlega eðlilegt að tala hér í kvöld um árangurinn við endurreisnina. Við jafnaðarmenn ætlum okkur að halda áfram á þessari braut í verkum vetrarins og í kosningunum að vori er eðlilegt að Íslendingar geti valið að byggja framtíðina næstu ár á þeim árangri sem nú hefur náðst. Jafnaðarmenn boða til nýrrar sóknar með áherslu á menntun og græna hagkerfið til að tryggja atvinnu og lífskjör í framtíðinni. Við viljum halda uppi jöfnuði með bættri þjónustu við fjölskyldurnar, taka fulla ábyrgð í umhverfis- og náttúruverndarmálum og hagnýta tækifærin sem þar liggja, stíga enn djarfari skref við að efla lýðræðið með beinni þátttöku borgaranna og vera með í samvinnu Evrópuþjóða.

Sem betur fer virðist staðan vera þannig að annar skýr kostur verður líka í boði. Hann býður fram flokkurinn sem ber ábyrgð á hruninu og hörmungum þess umfram öll önnur stjórnmálaöfl. Í Sjálfstæðisflokknum hafa menn setið og spekúlerað þessi fjögur ár, það er gott, og núna í sumar og haust er þar líka að koma í ljós svolítill árangur. Hv. þingmenn Bjarni Benediktsson og Illugi Gunnarsson lýstu því yfir í sumar að nú væri fram undan mikil tiltekt í samfélaginu, leiftursókn, ný leiftursókn sem fælist í því að lækka skatta og skera miklu meira niður en ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hefði tekist. Næsti kafli var að Bjarni Benediktsson og hv. þm. Ragnheiður Elín Árnadóttir fóru á flokksþing repúblikana í Bandaríkjunum í haust. Þriðji þátturinn er svo sérstakt málefnaþing á Akureyri hjá Sambandi ungra sjálfstæðismanna undir vígorðunum „Sókn gegn sósíalisma.“ Eins og frægt er orðið á þar ekki bara að sækja gegn sósíalistunum Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrími J. Sigfússyni heldur líka á móti sósíalistanum François Hollande, forseta Frakklands, og sósíalistanum Barack Obama, forseta Bandaríkjanna.

Flokkurinn stefnir á hugmyndafræðilega kosningabaráttu í vor, þar á að tefla repúblikanisma Sjálfstæðisflokksins fram gegn sósíalisma stjórnarflokkanna á Íslandi og gegn sósíalisma Baracks Obamas. [Hlátur í þingsal.]

Það kemur svolítið á óvart að þetta séu lærdómar hrunsins í Valhöll, að gera Sjálfstæðisflokkinn að íslenskri teboðshreyfingu, en það er sjálfsagt líka að fagna þessu því að núna í vetur og vor þurfum við ekki bara að ræða um hin mikilvægu praktísku verkefni sem fram undan eru heldur líka hvaða samfélag við viljum.

Viljum við samfélag þar sem markaðurinn ræður lögum og lofum og frumskógarlögmálin skapa mönnum örlög, eins og nú boða Mitt Romney, Paul Ryan og Bjarni Benediktsson í baráttu sinni gegn sósíalistunum Jóhönnu Sigurðardóttur og Barack Obama? Eða viljum við samfélag mótað af jafnaðarstefnu, samfélag þar sem menn taka ábyrgð hver á öðrum, þar sem markaðurinn er góður þjónn en ekki húsbóndi, þar sem jafnrétti, frelsi og bræðralag eru æðstu boðorð eins og frönsku sósíalistarnir á 18. öld vildu, samfélag þar sem þjóðin á auðlindirnar og þar sem menntun, heilsa og lágmarksafkoma er ekki byggð á náð og miskunn heldur á lögfestum rétti, samfélag „þar sem þú hugsar ekki bara um það sem landið þitt getur gert fyrir þig, heldur ekki síður um það sem þú getur gert fyrir landið þitt“ — eins og sagði í frægri ræðu fyrir rúmri hálfri öld sósíalistinn John F. Kennedy. [Hlátur í þingsal.]