141. löggjafarþing — 3. fundur,  13. sept. 2012.

Fjárlög 2013.

1. mál
[10:41]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Samkomulag er um fyrirkomulag umræðunnar sem að þessu sinni verður bæði í dag og á morgun, föstudag. Í dag verður almenn umræða um fjárlagafrumvarpið í framhaldi af framsögu fjármála- og efnahagsráðherra og á morgun, föstudag, munu umræður fara fram um málaflokka einstakra ráðherra. Fjármála- og efnahagsráðherra hefur allt að 30 mínútur til framsögu nú í upphafi og talsmenn allra þingflokka hafa 15 mínútur hver. Aðrir þingmenn úr fjárlaganefnd hafa tíu mínútur hver og allir aðrir þingmenn hafa fimm mínútur hver.

Við ræðum ráðherra og talsmanna geta aðeins ráðherra og talsmenn veitt andsvör. Við ræðum annarra þingmanna úr fjárlaganefnd má veita andsvör, en við ræðum annarra þingmanna, þ.e. fimm mínútna ræðunum, má ekki veita andsvör.

Á morgun munu fagráðherrar taka þátt í umræðunni og í lok hennar mun fjármála- og efnahagsráðherra taka til máls. Nánara fyrirkomulag umræðunnar á morgun verður tilkynnt við upphaf umræðunnar þá.