Fjárlög 2013.
Virðulegur forseti. Hv. þingmaður ítrekar spurningu sína um sérstakan saksóknara. Áætlanir sem undir liggja hafa væntanlega verið gerðar í samráði við sérstakan saksóknara. Ef menn vilja gera athugasemdir við það er vettvangurinn til þess í fjárlaganefnd og í fagnefndum þingsins núna á næstu mánuðum. Þar er hægt að fara yfir þessa hluti með embættinu og með fagráðuneytinu til að meta stöðuna að nýju, telji menn það nauðsynlegt.
Varðandi skuldastýringuna er ég ósammála hv. þingmanni um að þar sé pottur brotinn. Þar erum við með góða sérfræðinga og þess vegna get ég ekki séð ástæðu til þess að endurskoða verklagið. Auðvitað erum við stanslaust á tánum í skuldastýringunni af því að þar eru miklir fjármunir undir og nauðsynlegt að vanda verkin.