141. löggjafarþing — 4. fundur,  14. sept. 2012.

tilhögun þingfundar.

[10:31]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Í dag verður fram haldið 1. umr. um fjárlög fyrir árið 2013 með því að fagráðherrar taka þátt í umræðunni. Í lok umræðunnar mun fjármála- og efnahagsráðherra taka til máls. Rösklega ein klukkustund er áætluð fyrir hvern ráðherra og umræður um málaflokk hans.

Röð ráðherranna verður: Velferðarráðherra, menntamálaráðherra, innanríkisráðherra, umhverfisráðherra, utanríkisráðherra og atvinnu- og nýsköpunarráðherra. Mun fjármála- og efnahagsráðherra svo ljúka umræðunni síðar í dag og málið gengur til fjárlaganefndar að því loknu.

Hefst nú umræðan. Ráðherrar hafa sex mínútur í fyrsta sinn og síðan tvær mínútur hverju sinni. Þingmenn hafa þrjár mínútur í fyrra sinn og tvær mínútur í seinna sinn. Andsvör verða ekki leyfð.