launamál heilbrigðisstarfsmanna.
Virðulegi forseti. Það ríkir mikið ófremdarástand í launamálum heilbrigðisstarfsmanna og ekki síst á Landspítalanum eins og öllum er kunnugt. Fundur 200 hjúkrunarfræðinga nú í morgun er síðasta birtingarmynd þess ástands. Nú heyra þessi mál beint undir hæstv. velferðarráðherra þó að samningsmálin séu stjórnsýslulega á hendi hæstv. fjármálaráðherra. Hæstv. velferðarráðherra er sá fagráðherra sem þetta mál varðar. Við hljótum því að spyrja hæstv. ráðherra: Hver er skoðun hans á þessu? Hver er afstaða hans til þess að sú staða er uppi núna í launamálum heilbrigðisstéttanna að þær kalla á verulegar launaleiðréttingar?
Hæstv. ráðherra sagði hér áðan að ríkið hefði ekki ákveðið með hvaða hætti ætti að bregðast við. Það vekur auðvitað þá spurningu hvort hæstv. ríkisstjórn hafi komið þetta algjörlega á óvart, hæstv. ríkisstjórn hafi ekki reiknað með því að upp risu kröfur af þessu taginu hjá heilbrigðisstarfsmönnum þvert yfir heilbrigðissviðið. Þess vegna hlýt ég spyrja hæstv. ráðherra hvort þetta hafi komið honum algjörlega á óvart, hann hafi ekki átt von á því að heilbrigðisstarfsmenn færu fram með þau sjónarmið sem þeir hafa látið í ljós á undanförnum dögum. Ég ítreka að það hlýtur að vera eðlileg krafa af hálfu okkar og af samfélagsins hálfu að hæstv. velferðarráðherra greini frá skoðun sinni í þessum efnum.
Eins og við vitum hefur nú blandast inn í þessa umræðu mjög sérkennileg löggjöf, sem hæstv. ríkisstjórn hafði forgöngu um að setja, um að enginn megi hafa hærri dagvinnulaun en svarar launum hæstv. forsætisráðherra. Nú vita allir að þetta var lýðskrumslöggjöf. Það vita allir að þetta er dauður lagabókstafur. Það vita allir að menn taka ekkert mark á þessu. Hæstv. ráðherra hefur meira að segja fundið sérstakar hjáleiðir til að komast fram hjá þessari löggjöf. Því vil ég spyrja hæstv. ráðherra hvort hann sé ekki sammála mér um það að hann hafi nú þegar rekið síðasta naglann í (Forseti hringir.) líkkistu þessarar löggjafar, hvort það sé ekki eðlilegt að taka af skarið og afnema þessa sýndar- og lýðskrumslöggjöf.