mat á umhverfisáhrifum.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og athugasemdina. Því er í sjálfu sér fljótsvarað. Hér erum við að tala um lagabreytingu sem byggir á þessum dómi og þar með athugasemdum ESA þannig að hér er ekki um að ræða nýtt EES-mál heldur viðbrögð við þessum athugasemdum.
Það eru engar breytingar á þeim framkvæmdum sem falla undir lögin, þ.e. þessi upplestur hv. þingmanns hefði verið óbreyttur upp úr núgildandi viðaukum. Breytingin er sú að í stað þess sem nú heitir í frumvarpinu A- og B-hluti bætist við C-hluti í samræmi við athugasemdir ESA og er ætlað að tilkynna þær framkvæmdir þó að þær falli undir stærðarmörkin. Það er bara í samræmi við dóminn. Vegna þess og til að koma í veg fyrir það að um íþyngjandi ákvarðanir sé að ræða eins og nokkurs er kostur freistuðum við þess að tryggja einfaldari málsmeðferð í þessum flokki til að stytta tímann sem það tekur Skipulagsstofnun að taka ákvörðun um matsskyldu.
Við gerum vægari kröfu til framkvæmdaraðila um skil á gögnum og styttri tímafresti fyrir Skipulagsstofnun, meðvituð um að þetta er viðkvæmt samspil atvinnulífsins og regluverksins. Viðbrögð okkar við athugasemdum ESA fela í sér þessa breytingu sem er í þágu skýrara eftirlits en jafnframt af fullum skilningi gagnvart atvinnulífinu.