141. löggjafarþing — 7. fundur,  20. sept. 2012.

rannsókn á einkavæðingu banka.

50. mál
[17:04]
Horfa

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Hér er lögð fram tillaga til þingsályktunar um rannsókn á einkavæðingu Fjárfestingarbanka atvinnulífsins hf., Landsbanka Íslands hf. og Búnaðarbanka Íslands hf.

Það er í sjálfu sér vel en mér þykir fullyrðing hv. þm. Skúla Helgasonar sem sagði að einkavæðing þessara banka hefði í raun verið upphafið að því falli bankanna sem varð 2008 heldur stór vegna þess að í mínum huga er það framferði þeirra sem ráku og áttu bankana sem gerði það að verkum að svo fór sem fór.

Menn geta haft margar og ólíkar skoðanir á því með hvaða hætti farið var að einkavæðingunni. Ég er ein þeirra sem tel að ekki hafi verið staðið rétt að því ferli. Ég tel að það hafi verið rangt að hverfa frá hugmyndinni um dreift eignarhald til þess að fá einhverja einstaka kjölfestufjárfesta. Ég tel að það hafi verið röng nálgun með einkavæðingu bankanna og mér sýnist sem höfundar rannsóknarskýrslu Alþingis hafi komist að sömu niðurstöðu.

Hins vegar þykir mér líka merkilegt sem hv. þingmaður sagði áðan, að þegar stjórnarfrumvörp hafi verið lögð fram á þeim tíma hafi þingmenn, þá væntanlega þingmenn stjórnarflokkanna, aldrei haft skoðanir á þeim eða lagt til breytingar. Ég sat ekki á þeim þingum. Mér finnst hins vegar stundum að enn eimi eftir af þessu þó að ýmis stjórnarfrumvörp séu skoðuð. Ef sú rannsókn sem hér er lögð til getur líka orðið til þess að breyta vinnubrögðum á Alþingi fagna ég því sem fram kemur.

Ég vona hins vegar að ekki verði lagt í rannsókn af þessu tagi, sem kann að skila okkur skýrari og betri sögu þess ferlis sem farið var í, með það að markmiði að draga einstaka aðila til ábyrgðar, eins og stundum er sagt. Svo virðist sem þeir stjórnarflokkar sem réðu ríkjum á þeim tíma sem einkavæðing bankanna fór fram hafi með einhverjum hætti horft til flokkspólitískra hagsmuna, ef svo mætti að orði komast. Í það minnsta má tengja þá sem fengu Landsbankann ákveðnum stjórnmálaflokki og þá sem fengu Búnaðarbankann öðrum stjórnmálaflokki. Það er engum blöðum um það að fletta en hvort þar hafi flokkspólitísk sjónarmið ráðið för ætla ég ekki að fullyrða eitt eða neitt um. Það er líka ótrúleg lenska og ríkir enn að ef maður er í ákveðnum stjórnmálaflokki og gengur til ábyrgðar í samfélaginu, hvort heldur er innan einkageirans eða við starf hjá hinu opinbera, er ótrúlega fljótt farið að tala um hina pólitísku lykt. Sá sem embættið hlýtur er þá gerður tortryggilegur. Það er mjög miður.

Hins vegar sakna ég þess að í rannsókninni á þessari einkavæðingu liggi ekki samhliða fyrir rannsókn á þeirri einkavæðingu sem átti sér stað eftir hrunið. Ég held að þó að engum hafi dottið í hug að ræða það ferli út frá flokkspólitískum sjónarmiðum eigi ekki síður að skoða með hvaða hætti sú einkavæðing fór fram og hverjir eigi í raun bæði Arion banka og Íslandsbanka. Ég hefði talið skynsamlegt fyrir þing og þjóð að fá líka úr því skorið og sýnt fram á að það ferli hefði verið gagnsætt og heiðarlegt og að hvorki flokkspólitískir né aðrir hagsmunir hefðu ráðið för. Það var hins vegar ekki gert og þá er kannski rétt að boða þingsályktunartillögu í þá veru og óska eftir því samhliða að hún fái hraða meðhöndlun því að þar er málið nýrra og ætti að vera auðvelt að flýta slíkri rannsókn.

Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að hafa fleiri orð um þetta. Ég vænti þess að hv. nefnd sem fær málið til skoðunar afgreiði það hratt og vel og það muni bæði skila þingi og þjóð niðurstöðum sem hægt er að skoða og opna söguna eins og hv. þm. Skúli Helgason nefndi. Ég vonast hins vegar til þess að slík rannsókn verði í þágu þess að við lærum af verkefnunum, að við getum skoðað þau ferli sem við förum í og sýnt fram á að okkur sé alvara þegar við tölum um gegnsæi og betra verklag í þessum málum sem og öllum öðrum. Þá kemur til kasta þingsins að leggja ákveðnar línur varðandi fjármálafyrirtækin og um gagnsætt ferli, söluferli sem og önnur ferli innan þeirra stofnana. Það er Alþingi sem setur lög og það er Alþingi eitt sem getur afnumið lögin.

Ég vona að þegar þessi þingsályktunartillaga hefur verið afgreidd muni hún skila okkur því að við lærum af því sem þar fór fram og verði það niðurstaðan að illa hafi verið að verki staðið læri fólk og búi til ferla sem eru gegnsærri, betri, skilvirkari, skynsamlegri og þar með til hagsbóta fyrir þá sem að því máli koma, réttara sagt þegar einkavæðing á sér stað til hagsbóta fyrir þjóðina sem selur ákveðnar eignir einkaaðilum sem síðan reka það fyrirtæki með einum eða öðrum hætti.