141. löggjafarþing — 7. fundur,  20. sept. 2012.

rannsókn á einkavæðingu banka.

50. mál
[17:29]
Horfa

Tryggvi Þór Herbertsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mér finnst hv. þm. Björn Valur Gíslason ekki alveg svara spurningu minni. Hann snýr henni þannig að málið fari ekki í gegn nema það verði stutt af mér. Ég held að ég skipti ekki nokkru máli í þessu sambandi. Ég er í minni hluta í nefndinni sem ég er í. Stjórnarflokkarnir hafa meiri hluta í nefndunum og þeir hafa það hæglega í hendi sér, eins og þeir hafa haft í bæði skiptin á undan þar sem þessi tillaga hefur verið borið fram, að fara með málið í gegnum nefnd og inn í þingið og samþykkja það. Mig grunar að ekki fylgi hugur máli vegna þess að ef svo væri þá væri löngu búið að samþykkja þetta mál.

Mig langar að spyrja hv. þm. Björn Val Gíslason að því hvort það væri ef til vill ráð fyrst á að hefja rannsókn á einkavæðingu bankanna í þriðja skiptið að við mundum í leiðinni taka hina síðari einkavæðingu, þ.e. þegar Arion banki og Íslandsbanki voru færðir kröfuhöfunum án þess að það fengi nokkra umræðu. Væri ekki rétt að taka það í leiðinni? Það gæti verið síðasti kaflinn í þessari rannsókn á einkavæðingu bankanna að fjalla um það.

Eins og ég segi: Þetta mál er algerlega í höndum stjórnarflokkanna og ég skil ekki af hverju málið hefur ekki verið tekið í gegnum þingið ef það er svona mikilvægt og af hverju þessi rannsókn er ekki löngu hafin og henni lokið. Það eru að verða þrjú ár síðan þetta kom fyrst fram.