141. löggjafarþing — 7. fundur,  20. sept. 2012.

rannsókn á einkavæðingu banka.

50. mál
[17:38]
Horfa

Birkir Jón Jónsson (F) (andsvar):

Frú forseti. Það boðar engin góð tíðindi sú einkunn sem þingflokksformaður Vinstri hreyfingarinnar — græns framboðs gefur yfirlýsingu Gylfa Arnbjörnssonar eða Vilhjálms Egilssonar þegar þeir tala um svik ríkisstjórnarinnar eða það að ríkisstjórnin eigi eftir að efna ýmis loforð tengd kjarasamningum og að blanda Morgunblaðinu í það, þetta er einfaldlega frétt þar sem er viðtal við forystumenn Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins. Það er því ekki neinn friðarkyndill sem hv. þingmaður kemur með upp í ræðustólinn þegar hann viðhefur þau orð um þá frétt og þá miklu gagnrýni sem ríkisstjórnin hefur fengið á sig vegna stöðu atvinnumála í landinu, en það bíður annarrar umræðu.

Mér finnst með ólíkindum að hv. þingmaður skuli vera feiminn — um leið og ég lýsi því enn og aftur yfir að mér finnst allt í góðu að skoða þessi mál, þau hafa verið skoðuð að hluta, þ.e. fyrri einkavæðingin — og hræddur við að menn skoði hvernig einkavæðingu Íslandsbanka og Arion banka var háttað á sínum tíma, þar sem menn vita ekki einu sinni hverjir kaupendurnir voru, þar sem fjölmargir aðilar hafa bent á að það uppgjör fór fram á forsendum kröfuhafanna en ekki heimilanna í landinu. Það eru heimilin í landinu sem greiða reikninginn í dag vegna misheppnaðrar einkavæðingar á þessum tveimur stóru bönkum. Ég sé að hv. þingmaður brosir að því en þúsundir einstaklinga og heimila vilja fá leiðréttingar vegna þess að það er búið og er verið að blóðmjólka fleiri, fleiri heimili í landinu, sem ríkisstjórnin hefur ekki komið til móts við. Hv. þingmaður er greinilega smeykur um að skoðun á þeim málum gæti leitt (Forseti hringir.) ýmislegt óþægilegt í ljós.