141. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2012.

innheimtulög.

103. mál
[17:48]
Horfa

atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á innheimtulögum, nr. 95/2008. Meginefni fjallar um víðtækara eftirlit o.fl.

Í frumvarpinu sem samið var og undirbúið í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu og er nú endurflutt með nokkrum minni háttar breytingum eru lagðar til breytingar á innheimtulögum, nr. 95/2008, sem gengu í gildi 1. janúar 2009. Er þá meðal annars höfð hliðsjón af framkvæmd laganna og athugasemdum eftirlitsaðila, einkum Fjármálaeftirlitsins.

Helstu breytingar snerta vernd fjár á vörslureikningum, orðalag í innheimtuviðvörun varðandi næsta stig innheimtuaðgerða, hækkun starfsábyrgðartrygginga samkvæmt reglugerð, ákvæði um Lögmannafélag Íslands sem eftirlitsaðila en ekki úrskurðarnefnd lögmanna, Neytendastofu sem eftirlitsaðila með eigin innheimtustarfsemi aðila sem heyra ekki undir aðra eftirlitsaðila, flutning sérstaks eftirlits með innheimtu opinberra aðila frá Fjármálaeftirlitinu til Neytendastofu, lagaákvæði varðandi fjárhagslega stöðu innheimtuaðila, afturköllun innheimtuleyfis í stað leyfissviptingar og niðurfellingu innheimtuleyfis. Þá er meðal annars gert ráð fyrir heimild til stjórnvaldssekta fyrir gróf eða ítrekuð brot gegn góðum innheimtuháttum.

Ég mun nú víkja nánar að ákveðnum breytingum sem gerðar eru í frumvarpinu. Hvað snertir innheimtuviðvörun samkvæmt 3. gr. frumvarpsins er ekki eingöngu vikið að því að hún skuli send eftir gjalddaga kröfu heldur er bætt við orðunum „eða eindaga ef síðar er“ til að taka af tvímæli um þetta atriði. Þá er með hliðsjón af ákvæðum 72. gr. víxillaga kveðið á um að gjalddagi verði næsta virka dag á eftir gjalddaga ef gjalddaga ber upp á löghelgan dag eða dag þegar bankastofnanir eru almennt lokaðar. Kveðið er á um að greiðslu verði eigi krafist fyrr en næsta virka dag eftir löghelgan dag eða bankalokunardag og innheimtuviðvörun sé eigi dagsett og send fyrr en næsta virka dag þar á eftir, ef hún hefur þá ekki borist. Annað gæti valdið fólki óþarfaamstri. Orðalag hvað snertir innheimtuviðvörun er gert mildara þannig að ætíð sé vikið að næsta innheimtustigi, t.d. milliinnheimtu í stað þess að kveða ætíð strax á um málshöfðun eða aðrar innheimtuaðgerðir á grundvelli réttarfarslaga.

Innheimtulög snerta ekki svokölluð seðilgjöld nema í þeim undantekningartilvikum þegar unnt er að senda innheimtuviðvörun um leið og greiðslukröfu fyrir gjalddaga. Er kveðið á um í frumvarpinu að eigi skuli í þeim tilvikum krefjast greiðslu á seðilgjaldi eða samsvarandi gjaldi nema laga- eða samningsheimild sé fyrir hendi. Um nánari skýringar að þessu leyti vísa ég til athugasemda við d-lið 3. gr. frumvarpsins.

Í 4. gr. frumvarpsins er gert ráð fyrir skýrari ákvæðum í 10. gr. innheimtulaga um meðferð innheimtufjár á vörslureikningum til að tryggja betur hag kröfuhafa. Sambærilegar reglur um vörslufjárreikninga er að finna í lögum um miðlun vátrygginga, lögum um lögmenn og lögum um sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa, svo sem nánar er greint frá í athugasemdum við 4. gr. frumvarpsins.

Í 6. gr. frumvarpsins er gert ráð fyrir breytingu varðandi starfsábyrgðartryggingu. Er þar lagt til að ákvæðið sé sambærilegt og hjá lögmönnum. Gert er ráð fyrir að atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra kveði á um það í reglugerð til hvaða tjóns starfsábyrgðartrygging skuli taka, tryggingarfjárhæðir, heildarfjárhæð bóta innan hvers tryggingartímabils, eigin áhættu og brottfall tryggingarinnar.

Í 7. gr. frumvarpsins er gert ráð fyrir breytingum á 15. gr. innheimtulaga og kveðið á um að Lögmannafélag Íslands sé eftirlitsaðili í stað úrskurðarnefndar lögmanna. Er félagið almennur eftirlitsaðili með lögmönnum en einhverjum málum kann að verða vísað til úrskurðarnefndar sem fer með agavald gagnvart lögmönnum.

Í sömu grein frumvarpsins, þ.e. 7. gr., er gert ráð fyrir að Neytendastofa verði sérstakur eftirlitsaðili með almennri innheimtu á eigin kröfum aðila sem heyra ekki undir aðra eftirlitsaðila. Enginn sérstakur eftirlitsaðili hefur verið með slíkri innheimtu. Taka má fram að í Noregi er enginn eftirlitsaðili með slíkri starfsemi en innheimtulögin eru sniðin eftir ákvæðum norskra laga. Slíkt verður þó að teljast æskilegt. Um úrræði og málsmeðferð fer samkvæmt lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu sem Neytendastofa starfar eftir nema kveðið sé á um annað í innheimtulögum, svo og ákvæði laga um Neytendastofu og talsmann neytenda varðandi áfrýjunarnefnd neytendamála. Þar undir eru ákvæði um málskotsrétt aðila til áfrýjunarnefndar neytendamála. Neytendastofa mundi einnig hafa eftirlit með starfsemi opinberra aðila sem innheimta gjöld fyrir þjónustu.

Í 9. gr. frumvarpsins er gert ráð fyrir fjárhagslegu eftirliti Fjármálaeftirlitsins með innheimtuaðilum sem það hefur eftirlit með. Getur eftirlitið gripið fyrr inn í en verið hefur, stefni í vandræði.

Í 10. gr. frumvarpsins eru breytingar á 17. gr. innheimtulaga og er gert er ráð fyrir að breytt verði orðalagi greinarinnar þannig að kveðið verði á um afturköllun innheimtuleyfis í stað sviptingar þess. Jafnframt er bætt við ákvæðum um möguleika innheimtuaðila á úrbótum.

Í 11. gr. frumvarpsins er gert ráð fyrir nýrri grein í lögunum, 17. gr. a, sem fjallar um niðurfellingu innheimtuleyfis ef leyfið er ekki nýtt, því afsalað eða starfsemi stöðvuð.

Í 12. gr. frumvarpsins er meðal annars gert ráð fyrir nýrri heimild til að Fjármálaeftirlitið geti í vissum tilvikum gripið til stjórnvaldssekta vegna brota á ákvæðum 6. gr. laganna um góða innheimtuhætti ef um gróf eða ítrekuð brot er að ræða.

Í 13. gr. frumvarpsins er gert ráð fyrir breytingu á refsiákvæðum laganna þannig að möguleiki á beitingu refsingar vegna rangra eða villandi upplýsinga nái ekki einungis til upplýsinga um hagi fjármálafyrirtækja heldur annarra innheimtuaðila en fjármálafyrirtækja. Gildissviðið er þannig víkkað.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið gerir ráð fyrir því að frumvarpið, verði það óbreytt að lögum, muni einungis hafa í för með sér óveruleg útgjöld fyrir ríkissjóð sem eigi að geta rúmast innan fjárheimilda innanríkisráðuneytisins. Er þetta nánar skýrt í kostnaðarumsögn sem fylgir frumvarpinu.

Virðulegi forseti. Ég legg til að frumvarpinu verði að lokinni umræðunni vísað til efnahags- og viðskiptanefndar.