141. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2012.

skipan ferðamála.

128. mál
[18:13]
Horfa

atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg):

Frú forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 73/2005, um skipan ferðamála, með síðari breytingum. Frumvarp þetta var flutt á síðasta löggjafarþingi en náði þá ekki endanlegri afgreiðslu og er nú endurflutt í óbreyttri mynd.

Í frumvarpinu eru annars vegar lagðar til breytingar sem snúa að stjórnsýslu ferðamála og hins vegar breytingar sem lúta að öryggi ferðafólks og eftirliti með þeim sem selja ferðir hér á landi. Lagt er til að ferðamálaráð verði lagt niður í núverandi mynd en í stað þess komið á fót samráðsvettvangi um ferðamál sem fær mun skýrara hlutverk en ferðamálaráð hefur í gildandi lögum. Samsetning þessa vettvangs tekur mið af breyttu hlutverki þó að samráðsvettvangurinn verði eins og ferðamálaráð núna ráðherra til ráðgjafar um málefni ferðaþjónustunnar. Nái frumvarpið fram að ganga munu Umhverfisstofnun, Vegagerðin og Félag leiðsögumanna fá fulltrúa á samráðsvettvangi um ferðamál en þessir aðilar gegna veigamiklu hlutverki í uppbyggingu og gæðum ferðaþjónustunnar eins og allir hljóta að sjá.

Í frumvarpinu kemur fram að Ferðamálastofu sé ætlað að fara með markaðsmál ferðaþjónustunnar innan lands en Íslandsstofa hefur fengið það hlutverk að laða til landsins erlenda ferðamenn. Einnig gerir frumvarpið ráð fyrir að Ferðamálastofu séu falin ný verkefni. Stofnunin fari með vörslu og rekstur Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða, eins og fram kemur í lögum um sjóðinn, ásamt því sem Ferðamálastofu er falin umsjón með öryggisáætlunum þeirra sem bjóða upp á ferðir hér á landi en öryggisáætlanir eru nýmæli og reyndar fyrirferðarmikill hluti af frumvarpi þessu.

Á undanförnum árum hafa, eins og hv. alþingismönnum er kunnugt, orðið nokkur alvarleg slys á ferðafólki hér á landi. Til að bregðast við því er nauðsynlegt að gera auknar öryggiskröfur til þeirra aðila sem bjóða upp á ferðir. Því eru í frumvarpinu ákvæði sem kveða á um skyldur aðila sem bjóða upp á ferðir innan lands til að útbúa og skila til Ferðamálastofu öryggisáætlunum þar sem fram kemur mat á áhættu viðkomandi ferðar og lýsing á því hvernig viðkomandi aðili hyggst bregðast við beri vá að höndum í ferðinni. Nái frumvarpið fram að ganga fær Ferðamálastofa það verkefni að leiðbeina við gerð öryggisáætlana, skrá þær og birta. Þá mun Ferðamálastofa halda uppi eftirliti með því að ferðaskrifstofur og ferðaskipuleggjendur leggi fram öryggisáætlanir og sekti ef þær eru ekki fyrir hendi. Gert er ráð fyrir að þessar kröfur muni auka öryggi ferðamanna sem fara í skipulagðar ferðir innan lands. Breytingarnar munu hafa það í för með sér að ferðaskipuleggjendur og aðrir leyfishafar þurfa að meta áhættu af ferðum sínum og útbúa viðeigandi viðbragðsáætlun en þess ber að geta að margir leyfishafar hafa þegar útbúið eða gert slíkar áætlanir.

Þær auknu kröfur sem fram koma í frumvarpinu stuðla einnig að aukinni fagmennsku og betra skipulagi þeirra sem bjóða eða hyggjast bjóða upp á ferðir sem á einhvern hátt geta talist hættulegar. Í frumvarpinu er miðað við að sömu kröfur séu gerðar til allra þeirra sem bjóða upp á skipulagðar ferðir hér á landi. Þannig munu erlendir aðilar sem bjóða upp á ferðir hér á landi einnig þurfa að uppfylla kröfur frumvarpsins hvað varðar öryggisáætlanir. Ekki þykja rök fyrir því að gera aðrar kröfur til slíkra aðila. Öryggisáætlanir eru alfarið á ábyrgð þeirra sem bjóða upp á skipulagðar ferðir og Ferðamálastofa mun útbúa þar til gert eyðublað og veita viðeigandi leiðbeiningar til að auðvelda gerð og lestur öryggisáætlana. Standist öryggisáætlun augljóslega ekki kröfur laganna getur Ferðamálastofa hafnað móttöku hennar.

Virðulegi forseti. Í frumvarpinu sem ég mæli fyrir eru gerðar breytingar á skilgreiningu á hugtökunum „ferðaskipuleggjandi“ og „bókunarþjónusta“, m.a. vegna álitamála sem upp hafa komið. Jafnframt er lagt til að ferðaskipuleggjandaleyfi og ferðaskrifstofuleyfi verði tímabundin til samræmi við aðra þætti ferðaþjónustunnar þar sem leyfi eru almennt tímabundin. Í tímabindingu leyfa felst ákveðið aðhald og er eftirlit með skilyrðum leyfisveitingar í reynd gert reglubundið með þessu.

Í núgildandi lögum er það Ferðamálastofu að ákveða hvaða íslensk ferðafélög eru undanþegin ákvæðum laganna um leyfisveitingar hvað varðar ferðir innan lands. Lagt er til að greinin falli brott og íslensk ferðafélög lúti sömu reglum og önnur ferðaþjónustufyrirtæki hvað leyfismál varðar. Mikil samkeppni er í ört vaxandi ferðaþjónustu hér á landi og margir hafa komið inn í greinina á síðastliðnum árum. Kröfur um neytendavernd, öryggi, gæði og eftirlit fara vaxandi og því þykir ekki rétt að íslensk ferðafélög lúti öðrum lögmálum en ferðaskrifstofur og ferðaskipuleggjendur.

Frumvarpið felur einnig í sér minni háttar breytingar er snúa að útreikningi á tryggingafjárhæð og viðurlagaákvæði. Þá er fyrirkomulagi á gjaldtöku vegna útgáfu leyfa breytt í þá veru að gjaldið verði fastákveðið með lögum og renni í ríkissjóð en samkvæmt gildandi lögum innheimtir Ferðamálastofa þjónustugjöld vegna þjónustu sinnar í samræmi við gjaldskrá.

Þá er í frumvarpinu lagt til að gjald vegna útgáfu ferðaskrifstofuleyfis hækki úr 15 þús. kr. í 60 þús. kr., gjald vegna útgáfu ferðaskipuleggjandaleyfis hækki úr 10 þús. kr. í 45 þús. kr. og gjald fyrir bókunarþjónustu hækki úr 7.500 kr. í 15 þús. kr. Að auki er gert ráð fyrir að innheimt verði nýtt öryggisáætlunargjald sem verði 17 þús. kr. Við ákvörðun gjaldanna var miðað við að þau stæðu undir árlegum rekstrarkostnaði hjá Ferðamálastofu vegna afgreiðslu á 300 leyfisumsóknum og öryggisáætlunum. Þessi hækkun er vissulega töluverð og helgast af því að gjöldin hafa verið óbreytt frá því að lögin tóku gildi fyrir rúmum sex árum og hafa því hvorki fylgt verðlagshækkunum né auknum kostnaði vegna verkefnisins.

Verði frumvarpið að lögum er gert ráð fyrir að þau taki þegar gildi en að leyfi sem voru gefin út fyrir gildistöku laganna skuli endurnýja eigi síðar en fyrir 1. janúar 2015.

Við gerð frumvarpsins var haft samráð við ýmsa hagsmunaaðila. Má þar nefna Samtök ferðaþjónustunnar, ferðamálaráð, Ferðamálastofu, Ferðafélag Íslands, Félag leiðsögumanna, Landsbjörg og tollstjóra.

Að þessu sögu, frú forseti, leyfi ég mér að leggja til að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. atvinnuveganefndar að sjálfsögðu — ég var rétt farinn að segja efnahags- og viðskiptanefndar en hún er búin að fá sex frumvörp nú þegar á þessum fundi þannig að ég held að það sé rétt að þetta frumvarp fari á réttan stað sem er hjá atvinnuveganefnd.